Ford hættir við nærri 200 milljarða uppbyggingu í Mexíkó

Donald J. Trump gagnrýndi stjórn­endur Ford og svo virðist sem hlustað hafi verið á hann. Uppbygging fyrir­tækisins verður í Michigan en ekki í Mexíkó.

Bandaríski bíla- og véla­fram­leiðandinn Ford hyggst ekki byggja upp starfsemi fyrir 1,6 milljarða Bandaríkja­dala í Mexíkó, eins og hann hafði áður tilkynnt um, heldur verður þess í stað byggð upp enn frekari starfsemi í Michigan í Banda­ríkjunum.

Mark Fields, framkvæmda­stjóri hjá Ford, tilkynnti um þetta í dag, en mikil uppbygging fyrir­tækisins í San Luis Potosi í Mexíkó hefur verið slegin af. Þess í stað verður verksmiðja fyrir­tækisins í Wayne í Michigan notuð til þess að framleiða næstu kynslóð af Ford Focus bílum fyrir­tækisins en með því tekst að vernda um 3.500 störf í Michigan, sem annars hefðu flust til Mexíkó, að því er segir í umfjöllun Bloomberg.

Donald J. Trump, sem brátt tekur formlega við sem forseti Banda­ríkjanna, gagnrýndi Ford harðlega í kosninga­baráttunni fyrir að flytja störf úr landi og þá einkum til Mexíkó. Hann sagði þetta grafa undan hagkerfi Banda­ríkjanna.

Bill Ford, forstjóri Ford, sagðist í dag hafa rætt uppbyggingar­áform fyrir­tækisins við Mike Pence, vara­forsetaefni, en samkvæmt áformum Ford þá ætlar fyrir­tækið að fjárfesta fyrir um 700 milljónir Bandaríkja­dala, um 80 milljarða króna, til að setja upp fram­leiðslu sem skapa mun um 700 störf til viðbótar í Michigan.

Frekari uppbygging fyrir­tækisins í Mexíkó hefur þó ekki verið útilokuð í fram­tíðinni, en Ford segist vonast til þess að undir stjórn Trumps muni efnahagur Banda­ríkjanna blómstra, og þar með ýta undir frekari vöxt Ford.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár