Fasteignakaup og blóðugur fótboltaleikur

Ef þið elskið fót­bolta, lesið þessa bók. Ef þið hatið fót­bolta, lesið þessa bók. Ef þið hafið keypt eða selt íbúð, lesið þessa bók. Ef þið hafið leigt íbúð á ómann­eskju­legum leigu­mark­aði með alls konar dul­ar­fullum með­leigj­endum, lesið þessa bók.

Bók

Gegn gangi leiks­ins

- ljóðskáld deyr
Höfundur Bragi Ólafsson
Bjartur
157 blaðsíður
Gefðu umsögn

Einu sinni bjó ég á Lauf­ás­vegi í nokkur ár. Það gerði Bragi Ólafsson líka. Það gerði ljóð­skáldið Svanur Berg­munds­son sömu­leiðis. Þið sjáið hann á for­síðu bók­ar­innar. Svan­ur­inn kapp­klæddi. Þetta er alvöru svanur, þótt einu sinni hafi hann verið í manns­lík­ama. Hann er vopn­aður bjór og fót­bolta, með Fjalla­refstösku á öxl­inni og skrítna der­húfu á hausnum. Hausnum sem er fót­bolti. Þetta er svanur sem hefur drepið mann, ljóð­skáld sem drap mann og hætti að drekka á Litla-Hrauni.

Framan af fjallar þessi bók samt aðal­lega um fast­eigna­við­skipti. Hjörtur og Droplaug eru að skoða íbúð systur Svans, íbúð­ina sem hann býr í núna. Þau vilja kaupa, Svanur vill ekki að íbúðin selj­ist, því þá á hann hvergi heima.

Við þekkjum þetta flest. Þau okkar sem höfum ekki keypt fast­eign höfum leigt hús­næði dýrum dómum eða fengið að gista í hús­næði góð­vilj­aðra ætt­ingja. Við höfum hins vegar fæst upp­lifað jafn lit­ríkt og …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

4
Viðtal

Ef við kveðjum tungu­málið, þá týnum við vídd draumanna

Í sögu íslenskra bók­mennta í þús­und ár er lögð áhersla á raddir inn­flytj­enda, þá sem nú. Höf­und­ur­inn, Halldór Guð­munds­son, öðl­að­ist tveggja heima sýn ungur í Þýska­landi. Að læra lat­ínu frá 10 ára aldri lam­inn af kenn­ara sem skildi hann ekki, í sárum eftir heims­styrj­öld. Seinna spurði hann sig: „Hver má tala?" Í dag segir hann: „Íslend­inga­sögur dags­ins í dag eru að hluta til sagðar af fólki sem hingað hefur flutt."

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

5
Innlent

Hætta á að lánin hækki þó íbúða­verð lækki

Már Wolfgang Mixa hag­fræði­pró­fessor segir að stór hluti eigin fjár íbúða­eig­enda gæti þurrkast út á kom­andi mán­uðum. Verð­tryggðar fast­eigna­skuldir hækki í verð­bólgu­tíð sam­hliða því að íbúða­verð gæti lækkað. Hann leggur til að verð­tryggð hús­næð­is­lán fylgi íbúða­verði en ekki vísi­tölu neyslu­verðs. Þá myndu bank­arnir bera hluta áhætt­unnar.

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár