Einstaklingum leyft að kaupa eina erlenda fasteign á ári

Frumvarp um losun fjármagns­hafta, eitt stærsta mál ríkis­stjórnarinnar, verður lagt fram á Alþingi á morgun.

Bein erlend fjár­festing innlendra aðila verður ótakmörkuð en háð stað­festingu Seðla­banka Íslands. Þá verður einstaklingum veitt heimild til kaupa á einni fasteign erlendis á almanaksári, óháð tilefni og kaupverði.

Þetta er á meðal þess sem lagt er til í frumvarpi sem Bjarni Benediktsson, fjármála- og efnahags­ráðherra, leggur fram á Alþingi á morgun í tengslum við áætlun stjórn­valda um losun fjármagns­hafta. Tillögurnar voru kynntar á fréttamanna­fundi í fjármála- og efnahags­ráðuneytinu áðan. 

Um er að ræða eitt stærsta mál ríkis­stjórnar Sigurðar Inga Jóhanns­sonar og Bjarna Benedikts­sonar og eina af ástæðum þess að þeir vildu ekki að gengið yrði til þing­kosninga fyrr en í haust þrátt fyrir þann óróa sem skapaðist í kjölfar Panama-hneykslisins.

Stefnt er að því að auka verulega frelsi einstaklinga og fyrir­tækja til fjármagns­hreyfinga til og frá landinu og til gjaldeyris­viðskipta. Þannig verði stór skref stigin í átt að fullri losun fjármagns­hafta, raunar svo stór að eftir áramót ættu fáir að finna fyrir fjármagns­höftunum.

Að því er fram kemur í tilkynningu á vef fjármála­ráðuneytisins gerir áætlunin ráð fyrir tveimur skrefum. Lagt er til að strax við gildis­töku frum­varpsins verði:

Bein erlend fjár­festing innlendra aðila ótakmörkuð en háð stað­festingu Seðla­banka Íslands.

Fjár­festing í fjármála­gerningum útgefnum í erlendum gjaldeyri, öðrum peninga­kröfum í erlendum gjaldeyri og fyrirfram- og uppgreiðsla erlendra lána verði frjáls upp að ákveðnu fjár­hæðarmarki,  að uppfylltum tilteknum skilyrðum

Einstaklingum veitt heimild til kaupa á einni fasteign erlendis á almanaksári, óháð tilefni og kaupverði.

Dregið úr skila­skyldu innlendra aðila á erlendum gjaldeyri. Hún verði afnumin vegna lántöku einstaklinga hjá erlendum aðilum til kaupa á fasteign eða farartæki eða til fjár­festinga erlendis.

Ýmsar sértækar takmarkanir afnumdar eða rýmkaðar, m.a. heimildir einstaklinga til kaupa á ferða­gjaldeyri. 

Heimildir Seðla­banka Íslands til upplýsinga­öflunar verða auknar svo hann geti betur stuðlað að verðlags- og fjármála­stöðugleika.

Þann 1. janúar árið 2017 er svo lagt til að eftir­farandi breytingar taki gildi:

Fjár­hæðarmörk hækkuð til fjár­festinga í fjármála­gerningum útgefnum í erlendum gjaldeyri, öðrum peninga­kröfum í erlendum gjaldeyri og fyrirfram- og uppgreiðslu erlendra lána.

Innstæðu­flutningur heimilaður innan ofan­greindra fjár­hæðarmarka.  Skilyrði um innlenda vörslu­aðila erlendra verðbréfa­fjár­festinga fellt niður. Þar með munu innlendir og erlendir aðilar geta flutt innstæður og verðbréf til og frá landinu og átt viðskipti með verðbréf erlendis innan þeirra marka sem frum­varpið setur þeim.

Heimildir einstaklinga til kaupa á gjaldeyri í reiðufé rýmkaðar verulega.

Í tilkynningunni segir jafnframt:

Með þeim ráðstöfunum sem settar eru fram í frum­varpinu ættu fjármagns­höftin ekki að setja þorra einstaklinga verulegar skorður og mjög fáum eftir næstu áramót. Áætlað er að þær breytingar sem frum­varpið felur í sér muni leiða til þess að beiðnum um undanþágu frá lögum um gjaldeyrismál fækki um 50–65%. Jafnframt má gera ráð fyrir því að afgreiðslu­tími undanþágu­beiðna styttist til muna. Frum­varpið hefur ekki áhrif á heimildir aflands­krónu­eigenda. 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár