María Heimisdóttir nýr forstjóri Sjúkratrygginga Íslands

Heil­brigð­is­ráð­herra hefur skipað Maríu Heim­is­dóttur for­stjóra Sjúkra­trygg­inga Íslands til næstu fimm ára.

María Heimisdóttir
María Heim­is­dóttir Mynd: Aðsend mynd

Svandís Svav­ars­dóttir heil­brigð­is­ráð­herra hefur ákveðið að skipa Maríu Heim­is­dóttur for­stjóra Sjúkra­trygg­inga Íslands til næstu fimm ára. Hún tekur við emb­ætt­inu þegar Stein­grímur Ari Arason, núver­andi for­stjóri, lætur af störfum 31. októ­ber næst­kom­andi.

Þetta kemur fram í frétt ráðu­neyt­is­ins.

Skipunin er, sam­kvæmt frétt­inni, í sam­ræmi við til­lögu stjórnar sjúkra­trygg­inga en María var önnur tveggja sem stjórnin taldi hæf­asta til að gegna emb­ætt­inu. Ráðherra ræddi við þessa tvo umsækj­endur og tók í kjöl­far þess ákvörðun sína um skipun í emb­ættið.

„Ellefu umsækj­endur voru um emb­ætti for­stjóra Sjúkra­trygg­inga Íslands. Ráðn­ing­ar­ferlið fór þannig fram að þriggja manna hæfn­is­nefnd sem starfar sam­kvæmt lögum um heil­brigð­is­þjón­ustu mat hæfni þeirra ell­efu umsækj­enda sem sóttu um starfið. Nið­ur­staða hæfn­is­nefndar fór fyrir stjórn Sjúkra­trygg­inga Íslands sem á grund­velli þess mats gerði til­lögu til ráð­herra, líkt og kveðið er á um í lögum um sjúkra­trygg­ingar. Hæfn­is­nefnd mat þrjá umsækj­endur hæf­asta, fjóra umsækj­endur vel hæfa, tvo hæfa en tveir umsækj­end­anna upp­fylltu ekki að fullu skil­yrði aug­lýs­ingar. Stjórnin taldi tvo hæf­asta af þeim þremur sem hæfn­is­nefndin hafði metið svo og lagði sem fyrr segir þá nið­ur­stöðu sína fyrir ráð­herra til ákvörð­unar,“ segir í frétt ráðu­neyt­is­ins.

María Heim­is­dóttir lauk emb­ætt­is­prófi í lækn­is­fræði frá Há­skóla Íslands árið 1990. Hún stund­aði fram­halds­nám í Banda­ríkj­un­um, lauk MBA námi frá Uni­versity of Conn­ecticut árið 1997 með áherslu á stjórnun í heil­brigð­is­þjón­ustu, og síðan dokt­ors­námi í lýð­heilsu­fræðum (PhD), sam­hliða vinnu við kennslu og rann­sókn­ir, frá Uni­versity of Massachusetts árið 2002.

María hefur frá árinu 2010 verið fram­kvæmda­stjóri fjár­mála­sviðs Land­spít­ala en hafði áður veitt for­stöðu upp­lýs­inga- og hag­deild spít­al­ans árin 2006 til 2010. Árin 1999 til 2002 starf­aði María hjá Íslenskri erfða­grein­ingu við þró­un­ar­verk­efni. María er klínískur lektor við lækna­deild Há­skóla Íslands, hefur birt vís­inda­grein­ar í inn­lend­um og er­lend­um fræði­rit­um, sinnt aka­demísk­um leið­bein­anda- og próf­dóm­ara­störf­um og stundað kennslu á sviði stjórn­un­ar, lýð­heilsu og klín­ískr­ar upp­lýs­inga­tækni, meðal ann­ars í lækna­deild og fé­lags­fræði­deild HÍ.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

4
Innlent

Hætta á að lánin hækki þó íbúða­verð lækki

Már Wolfgang Mixa hag­fræði­pró­fessor segir að stór hluti eigin fjár íbúða­eig­enda gæti þurrkast út á kom­andi mán­uðum. Verð­tryggðar fast­eigna­skuldir hækki í verð­bólgu­tíð sam­hliða því að íbúða­verð gæti lækkað. Hann leggur til að verð­tryggð hús­næð­is­lán fylgi íbúða­verði en ekki vísi­tölu neyslu­verðs. Þá myndu bank­arnir bera hluta áhætt­unnar.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár