Fjarar enn undan geisladiskunum - Starbucks hættir að selja þá

Geisla­diskurinn er fyrir töluvert löngu hættur að vera vinsælasta formið til dreifingar á tónlist, eins og hann var einu sinni. Ýmsar verslanir hafa þó haldið tryggð við geisla­diskana í sölu, og er Starbucks kaffihúsa­keðjan á meðal þeirra. Hún hefur haft geisla­diska til sölu á meira en tuttugu þúsund kaffi­húsum sínum víðs vegar um heim, en tilkynnti í gær um að sölu á geisla­diskum yrði hætt í næsta mánuði en þess í staða yrði möguleiki á því að nálgast tónlist í gegnum internetið stórlega bættur. Rúmlega tuttugu ár eru síðan Starbucks hóf að selja geisla­diska.

Sala á geisla­diskum hefur hríð­fallið undan­farin ár. Sé litið sérstak­lega til stærsta einstaka markarðarins með tónlist, Banda­ríkjanna, þá seldust 257 milljónir eintaka af plötum tónlistar­manna, sem var um 11 prósent minna en árið 2013. Af þessum fjölda var 140,8 milljónir geisla­diskar, sem var um 15 prósent minna en árið 2013. Aðeins tvær plötur náðu því að vera seldar í meira en tveimur milljónum eintaka (Platinum), það voru platan 1989 með Taylor Swift, og síðan tónlistin úr barna­myndinni Frozen.

vinyl
vinyl

Sala á vínyl­plötum hefur aukist gríðar­lega hratt að undan­förnu. Í fyrra voru 9,2 milljónir vínylplatna seldar á heimsvísu, sem var um 51,8 prósent aukning frá því árið 2013. Um þessar mundir er sala á vínyl­plötum um sex prósent af heildar­sölu á tónlist.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár