Sprengisala á vínylplötum í fyrra - algjört metár í sölu

Sala á vínyl­plötum hefur aukist jafnt og þétt undan­farin ár, og var árið 2014 besta söluár vínyl­platna á heimsvísu síðan árið 1993. Salan hefur verið sérstak­lega mikil á undan­förnum fjórum árum, en þá urðu vínyl­plötur vinsælar á nýjan leik og hafa listamenn gefið út metnaðar­fullar útgáfur af efni sínu á þessu tímalausa formi.

Samkvæmt upplýsingum sem vefmiðillinn Vox vitnar til í umfjöllun sinni, seldust um 9,2 milljónir vínyl­platna í fyrra, en um sex milljónir árið 2013. Salan jókst því um ríflega 50 prósent milli ára.

Hér má sjá tölur yfir seld eintök af vínyl­plötum á síðust árum. Árið í fyrra var algjört metár, sé horft til síðustu 20 ára, eð frá árinu 1993. Vöxturinn í sölu hefur verið sérstak­lega hraður frá árinu 2009.

vinyl
vinyl
Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár