Orkureikningurinn hefur hækkað um tugi prósenta

Verð á kílóvatt­stund af raforku hjá Orku­veitur Reykja­víkur (OR) hefur hækkað um 48 prósent frá árinu 2010. Dreifing raforku hefur hækkað um 68 prósent og flutningur hennar um 22 prósent. Vísitala neyslu­verðs, sem mælir verðbólgu, hefur á sama tímabili hækkað um 23 prósent. Þetta kemur fram í Viðskipta­blaðinu í dag þar sem farið er yfir rekstur OR.

Í blaðinu segir að þessar hækkanir þýði að rafmagns­reikningur meðal­stórs heimilis, sem notar 350 kílóvatt­stundir af raforku á mánuði, hefur hækkað úr 48.600 krónum í 74.700 krónur á ári, eða um 26.000 krónur. Ef gjaldskrá OR hefði fylgt vísitölu neyslu­verðs væri rafmagns­reikningurinn 59.800 krónur, eða 14.900 krónum lægri en hann er.

Viðsnúningur í rekstri

OR, sem er að stærstu leyti í eigu Reykja­víkurborgar, hefur unnið eftir svokölluðu „Plani“ á undan­förnum árum, sem sett var saman til að bjarga fjárhag fyrir­tækisins. Hann var afleitur eftir mikil fjár­festinga­ævintýri fyrir hrun, sem fólu meðal annars í sér áætlanir um hraða uppbyggingu jarðvarma­virkjanna. Stærsta fjár­festingin sem ráðist var í, Hellis­heiðar­virkjun, hefur ekki staðið undir væntingum og ekki er næg gufa á því svæði sem hún átti að sækja orku á til að reka virkjunina á fullum afköstum. Því var brugðið á það ráð að sækja gufu á Hvera­hlíðar­svæðið fyrir hana til að vinna úr. Í Viðskipta­blaðinu segir Bjarni Bjarnason, forstjóri OR, að vinnslu­geta þeirra jarð­hitasvæða sem áttu að duga fyrir Hellis­heiðar­virkjun sé enn að dala, sem sé alvarlegt mál.

Heilt yfir hefur „Planið“ þó gengið vel. Viðsnúningur hefur orðið í rekstri OR og aðgerða­áætlunin skilað fyrir­tækinu 57,2 milljörðum, sem er 8,5 milljörðum meira en áætlanir gerðu ráð fyrir. Stefnt er að því að greiða eigendur OR um fimm milljarða króna arð á næsta ári, en það verður í fyrsta sinn frá árinu 2009 sem OR mun greiða slíkan.

Vildu lækka orkugjöld heimila

Auknar tekjur vegna „leið­réttingar“ gjaldskrár nema 9,9 milljörðum króna á tíma­bilinu frá 2011 fram á mitt ár 2016. Það er 2,7 milljörðum meira en gert var ráð fyrir í „Planinu“. Í Viðskipta­blaðinu er bent á að OR selji aðallega orku á almennum markaði til heimila og minni fyrir­tækja. Eini stóri stóriðju­viðskipta­vinur samstæðunnar er Norðurál, en sala til þess fyrir­tækis nemur um 12 prósent af heildar­tekjum OR á ári.

Auknar álögur á viðskipta­vini OR í gegnum gjaldskrár­hækkanir var til umræðu í borgar­ráði Reykja­víkur í síðustu viku. Þar lögðu borgar­fulltrúar Sjálfstæðis­flokks fram tillögur um að OR ætti að gera áætlun um hvernig lækka mætti orkugjöld á heimili. Fulltrúar Samfylkingarinnar, Vinstri grænna og Pírata, sem mynda meirihluta í borginni, felldu tillöguna.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár