Boðar hækkun stýrivaxta eftir sjö ár við núllið

Seðla­banki Banda­ríkjanna, sem hefur verið með stýri­vexti við 0 prósent frá því haustið 2008, er farinn að boða hækkun á stýri­vöxtum um mitt ár, að því er sérfræðingar á markaði, sem breska ríkis­útvarpið BBC vitnar til, telja. Ástæðan fyrir þessu mati sérfræðingana er sú að orðalag í tilkynningum frá bankanum hefur breyst og stendur nú eftir að bankinn muni hefja vaxta­hækkunar­ferli þegar frekari bati hefur náðst á vinnu­markaði.

Eftir að tilkynning bankans kom út hækkaði gengi hluta­bréfa á markaði í Banda­ríkjunum um eitt prósent að meðaltali, og var hækkunin rakin til þessa breytta orðalags. Jafnframt segir í tilkynningunni að ekki liggi fyrir ennþá, hvenær vaxta­hækkunar­ferlið muni hefjast, en flest bendir til þess að það gerist um mitt ár, þar sem batinn á vinnu­markaði hefur verið viðvarandi og stöðugur. Í febrúar urðu til 295 þúsund ný störf í bandaríska hagkerfinu og hefur atvinnu­leysi verið að minnka, jafnt og þétt, og mælist nú 5,7 prósent.

Þessi breytta stefna þykir til marks um að efnahags­batinn í Banda­ríkjunum sé meiri en reiknað hafði verið með, og erfið­leikar, sem rekja má til fjármála­kreppunnar sem hófst 2007, séu nú að baki.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár