Beinir og óbeinir styrkir hins opinbera til bænda 29,1 milljarður króna í fyrra

Hagfræði­prófessor segir að íslenska landbúnaðar­kerfið kosti skatt­greiðendur og neytendur að minnsta kosti tæplega 30 milljarða króna á ári í beina og óbeina styrki. Enn eru fimm ár þar til gildandi búvöru­samningar renna út.

Gildandi búvörusamningar, sem ramma inn beinar greiðslur til bænda, voru undirritaðir af þáverandi landbúnaðarráðherra og þáverandi fulltrúum bænda árið 2016.
Gildandi búvöru­samn­ingar, sem ramma inn beinar greiðslur til bænda, voru und­ir­rit­aðir af þáver­andi land­bún­að­ar­ráð­herra og þáver­andi full­trúum bænda árið 2016. Mynd: stjornarrad.is

Á árinu 20202 námu beinir styrkir úr ríkis­sjóði til bænda 16,3 milljörðum króna og óbeinir styrkir til þeirra 12,8 milljörðum króna, með hliðsjón af efni Efnahags- og framfara­stofnunarinnar (OECD).

Beinu styrkirnir eru það skattfé sem rennur beint til bænda úr ríkis­sjóði en þeir óbeinu eru styrkir sem neytendur greiða í formi hærra vöruverðs sem haldið er uppi með tollskrá og öðrum innflutnings­tálmunum.

Þetta kemur fram í nýbirtu svari á Vísindavef Háskóla Íslands þar sem spurningunni „Hvað greiðir ríkis­sjóður mikið á ári til land­búnaðar á Íslandi?“ er svarað af Þórólfi Matthíassyni, prófessor í hagfræði við Háskóla Íslands.

Í svarinu segir þó að líta beri á þessa niður­stöðu, að íslenskur land­búnaður fái alls tæplega 30 milljarða króna meðgjöf á ári frá skatt­greiðendum og neytendum, sem lægri mörk hins raun­verulega stuðnings. Auk innflutnings­takmarkana búi úrvinnslu­greinar land­búnaðar við undanþágur frá samkeppnis­lögum sem ekki sé tekið tillit til í reikni­verki OECD sem stuðst er við í svarinu. „Það gefur þessum fyrir­tækjum færi á að stunda viðskipta­hætti sem önnur fyrirtæki í skyldum rekstri geta ekki. Vísbendingar eru um að slíkir viðskipta­hættir þrýsti upp verði á fram­leiðslu afurða­stöðva land­búnaðarins umfram það sem ella hefði orðið.“

Þá sé heldur ekki tekið tillit til þess að bændur hafi gjald­frjálsan aðgang að afréttum sem þeir hafi nýtt með ósjálfbærum hætti.

Umdeildir samningar til tíu ára

Búvöru­­samn­ing­­arnir, sem ramma inn beinar greiðslur til bænda úr ríkis­sjóði, eru fjórir samn­ing­­ar: Ramma­­samn­ingur um almenn starfs­skil­yrði land­­bún­­að­­ar­ins og samn­ingar um starfs­skil­yrði naut­­­gripa­­­rækt­­­­­ar, sauð­fjár­­­­­ræktar og garð­yrkju.

Síðustu búvöru­samn­ing­­­ar voru und­ir­­­rit­aðir 19. febr­­­úar 2016 af full­­­trúum bænda ann­­­ars vegar og full­­­trúum rík­­­is­ins hins vegar. Fyrir hönd rík­­­is­ins skrif­uðu Sig­­­urður Ingi Jóhanns­­­son, þáver­andi land­­­bún­­­að­­­ar­ráð­herra, og Bjarni Bene­dikts­­­son, fjár­­­­­mála- og efna­hags­ráð­herra, undir samn­ing­anna.

Þeir voru afar umdeildir og vöktu upp miklar deilur í sam­­fé­lag­inu. Þrennt skipti þar mestu. Í fyrsta lagi lengd þeirra, en samn­ing­­arnir bundu hendur rík­­is­­stjórn­a í að minnsta kosti þrjú kjör­tíma­bil. Í öðru lagi feiki­lega hár kostn­aður sem greiddur er úr rík­­is­­sjóði til að við­halda kerfi sem að mati margra hags­muna­að­ila er fjand­­sam­­legt neyt­endum og bændum sjálfum og gagn­­ast fyrst og síð­­­ast stórum milli­­liðs­­fyr­ir­tækjum eins og Mjólk­­ur­­sam­­söl­unni, Kaup­­fé­lagi Skag­­firð­inga og Slát­­ur­­fé­lagi Suð­­ur­lands. Í þriðja lagi var gagn­rýnt að engir aðrir en bændur og for­svar­s­­menn rík­­is­ins hafi verið kall­aðir að borð­inu þegar samn­ing­­arnir voru und­ir­­bún­­­ir.

Kostnaðurinn meiri en áætlað var

Greiðslur úr rík­­is­­sjóði vegna samn­ings­ins voru áætlaðar 132 millj­­örðum króna á samn­ings­­tím­an­um, eða að með­­al­tali 13,2 millj­­arðar króna á ári. Auk þess eru samn­ing­­arnir tvö­­falt verð­­tryggð­­ir. Þ.e. þeir taka árlegum breyt­ingum í sam­ræmi við verð­lags­­upp­­­færslu fjár­­laga og eru „leið­rétt­ir“ ef þróun með­­al­tals­­vísi­­tölu neyslu­verðs verður önnur en verð­lags­­for­­sendur fjár­­laga á árinu.

Ljóst er, miðað við svar Þórólfs sem birtist í vikunni, að beini kostnaðurinn við samninganna er meiri en áætlað var þegar þeir voru gerðir.

Í samn­ing­unum var stefnt að því að kvóta­­­kerfi í mjólk­­­ur­fram­­­leiðslu og sauð­fjár­­­­­rækt verði lagt nið­­­ur. Hins vegar var ákveðið að halda þáverandi stöðu óbreyttri um ein­hvern tíma og setja ákvörðun um afnám kvóta­­­kerf­is­ins í atkvæða­greiðslu meðal bænda árið 2019. Þegar hún fór fram samþykktu 89 prósent bænda að viðhalda kvóta­kerfinu.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár