Lögreglan hundeltir þá sem reykja gras meðan fólk er dauðadrukkið í kringum börnin sín

Steinunn Ólína Þorsteins­dóttir segir að það ríki gríðarleg meðvirkni gagnvart glataðri drykkju­menningu.

Mynd: Íris Ann Sigurðardóttir
Mynd: Íris Ann Sig­urð­ar­dóttir Mynd: Íris Ann Sigurðardóttir

Steinunn Ólína Þorsteins­dóttir, leikkona og ritstjóri Kvenna­blaðsins, telur að á Íslandi gæti gríðarlegrar meðvirkni gagnvart glataðri drykkju­menningu. Þetta er á meðal þess sem fram kemur í viðtali við hana í nýjasta tölublaði MAN sem dreift var til áskrifenda í dag og kemur í verslanir á morgun. 

„Lögreglan hundeltir barnafólk sem reykir gras en enginn gerir athuga­semdir við heimilis­hald þar sem fólk er dauða­drukkið í kringum börnin sín. Áfengis­neysla og heimilis­ofbeldi á Íslandi helst í hendur. Við þurfum að uppræta þessa glötuðu drykkju­menningu,“ segir Steinunn Ólína sem lýsir því hvernig líf hennar breyttist til hins betra eftir að hún hætti að drekka. „Allt er auðveldara og það er eins og þrír dagar hafi bæst við vikuna. Ég næ að slaka á með öðrum hætti og mér er alveg sama þó aðrir drekki í kringum mig.“  

Í viðtalinu fjallar Steinunn Ólína meðal annars um hugmyndina á bak við Kvenna­blaðið, frétta- og afþreyingarvef sem þær Soffía Steingríms­dóttir opnuðu árið 2013. 

„Ég fór að skoða þessa svokölluðu kvenna­miðla innlenda og erlenda, og þessar síður blaðanna sem eiga að vera fyrir konur. Þessar síður eru allra góðra gjalda verðar, ég sjálf les um slúður, krem, heilsu og tísku ef því er að skipta, en það sem ég áttaði mig fljótlega á er að þetta er nánast eingöngu markaðs­efni sem beint er að konum sérstak­lega, það virðist sem sé útbreiddur misskilningur að markaðs­efni sé það eina sem þær hafi raun­verulega áhuga á. Þegar maður flettir þessum síðum þá verður maður engu nær um veröldina, maður upplifir eiginlega bara skort eða vöntun, það er verið að gera eitthvað eftirsóknar­vert sem maður getur kannski aldrei eignast, setja fram markmið sem maður getur aldrei náð, hvort sem það eru nú rándýrir skór, penthouse-íbúð í New York, fárán­legur árangur í líkams­rækt eða einhver glamúr-lífsstíll. Einhvern veginn skilur efnið lesandann eftir með þá tilfinningu að hann sé heldur misheppnaður og að hann verði að eignast svona líf, hvað sem það kostar. En ég held að flestar konur langi bara ekkert í svona líf,“ er haft eftir Steinunni. „Ég vissi að það væru til fjölmargar konur eins og ég sem hefðu brennandi áhuga á samfélaginu og vildu taka þátt í þjóðfélags­umræðunni. Hugmynd okkar var því að búa til einhvers konar fjölmiðil sem væri beint til kvenna án þess að segja þeim hvernig þær ættu að lifa lífinu, og án þess að segja þeim að líf þeirra væri ófull­komið.“

„Konur þykja verðmætur hópur fyrir
auglýsendur en það er eins og það gildi
ekki um okkar lesendur“

Fram kemur að þrátt fyrir að mikill lestur sé á vefnum, eða að jafnaði 120 þúsund einstakir notendur á viku, sé reksturinn erfiður. „Auglýsendur sumir hverjir sniðganga okkur vegna róttækni, sem er bjánalegt því okkar lesendur kaupa vörur og þjónustu ekkert síður en aðrir. Sumir auglýsendur styðja líka bara ákveðna fjölmiðla vegna hagsmuna­tengsla eða af gömlum vana, þetta er ekki alveg einfalt. Ég veit ekki um neinn annan fjölmiðil fyrir konur í heiminum sem er ekki keyrður áfram á lífs­stílsefni heldur sem fjöl­breyttur frétta- og afþreyingar­vefur þar sem lesenda­hópurinn er að stærstum hluta konur. Konur þykja verðmætur hópur fyrir auglýsendur en það er eins og það gildi ekki um okkar lesendur, það er eins og þessum miðaldra körlum sem stýra auglýsinga­bransanum og mörgum fyrir­tækjum landsins finnist miðillinn ekki nógu fínn og kannski bara á köflum of óþægilegur, hugsanlega er bara markvisst verið að reyna að þagga niður í okkur. Þetta er fáránlegt því þarna er ekki verið að hugsa um konur sem neytendur sem taka sjálf­stæðar ákvarðanir og það að ná til þeirra. Það að stærstu auglýsendur landsins auglýsi aldrei hjá okkur sem gæti skipt sköpum fyrir okkar rekstur snýst um allt annað en neytendur, það snýst um hagsmuni, fjölmiðla­stjórnun og ekkert annað,“ segir hún. 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár