Ritstjóri Morgunblaðsins kallar eftir þjóðaratkvæðagreiðslu um þriðja orkupakkann

Vara­formaður Sjálfstæðis­flokksins er harðlega gagnrýnd í leiðara Morgun­blaðsins í dag. Þar er innleiðingu þriðja orku­pakkans svokallaða enn og aftur líkt við Icesave-málið.

Í leiðara Morgun­blaðsins í dag er Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfa­dóttir, ferða­mála-, iðn­að­ar- og nýsköp­un­ar­ráð­herra og vara­formaður Sjálfstæðis­flokksins, harðlega gagnrýnd fyrir að vera „merkis­beri“ innleiðingu þriðja orkupakka Evrópu­sambandsins.

Þar segir að ríkis­stjórnin, sem samanstendur af Vinstri grænum, Framsóknar­flokknum og Sjálfstæðis­flokknum, sýni af sér „eindreginn brota­vilja varðandi „þriðja orku­pakkann“ og pantar sér ótæk „lögfræði­álit“ til réttlætingar. Í minni er hve auðkeyptir „sérfræðingar“ voru í hinu ömurlega Icesavemáli. Ekkert hefur laskað Sjálfstæðis­flokkinn eins og það mál. Og orku­pakkinn, „Icesave, taka tvö,“ er skrítnara, og það að horfa á vara­formann flokksins gerast þar merkis­beri! Það veldur óendanlegum vonbrigðum. Við blasir að vísa því máli til þjóðarinnar.“

Ritstjórnar Morgun­blaðsins eru Haraldur Johannessen og Davíð Oddsson, fyrr­verandi formaður Sjálfstæðis­flokksins. Málflutningurinn í leið­aranum ber þess öll merki að Davíð hafi skrifað hann, enda mjög í takt við fyrri skrif hans í ritstjórnar­greinum Morgun­blaðsins um hinn svokallaða þriðja orkupakka.

Þetta er ekki í fyrsta sinn sem Davíð gagnrýnir Þórdísi Kolbrúnu sérstak­lega vegna málsins. Það gerði hann líka í september í leiðara þar hann sagði Þórdísi Kolbrúnu hafa látið rugla sig í ríminu. Hann sagði líka að: „Erfitt væri að ímynda sér að þing­menn Sjálf­stæð­is­flokks­ins muni standa að þessu máli, að minnsta kosti ekki þeir fáu sem hlupust ekki undan merkjum í Icesave.“

Sagðist hlusta á gagnrýni

Þórdís Kolbrún ræddi þriðja orku­pakkann í sjónvarps­þættinum 21 á Hringbraut í nýliðnum mánuði. Hægt er að sjá viðtalið við hana hér að neðan. Umræður um orku­pakkann eru í upphafi þess.

Þar sagðist hún hlusta á gagnrýni um málið en benti á að Ísland hafi aldrei ákveðið að aflétta ekki stjórn­skipu­legum fyr­ir­vara til að inn­leiða til­skipun frá Evr­ópu­sam­band­inu. „Það er engin hræðslu­á­róður að segja að við vitum ekki hvert það leiðir okk­ur. Vegna þess að ég hef engan heyrt svara því[...]„Ég er ekki sann­færð um að þetta sé slagur sem við eigum að taka, um efni máls, það er þessa þriðja orku­pakka. Að við ætlum ekki að aflétta stjórn­skip­un­ar­legum fyr­ir­vara.“

Þór­dís Kol­brún sagði enn fremur að það verði að koma í ljós hvað þing­menn flokks­ins geri í mál­inu. „Ég segi bara að okkur liggur ekk­ert á að afgreiða þetta mál. Þessi umræða hún truflar mig ekk­ert. Mér finnst hún fín ef hún á end­anum leiðir til þess að við komumst lengra í að ræða það sem málið snýst um. Það eru auð­vitað skiptar skoð­anir innan allra stjórn­ar­flokk­anna um þetta mál.“

Tveir sérfræðingar segja áhrifin nær engin

Í minn­is­­blaði sem lög­­­­­mað­­­ur­inn Ólafur Jóhannes Ein­­­ar­s­­­son, áður fram­­­kvæmda­­­stjóri hjá Eft­ir­lits­­­stofnun EFTA (ESA), gerði fyrir Þór­­­dísi Kol­brúnu, og birt var opin­ber­­­lega 17. apr­íl, kom skýrt fram að þriðji orku­­­pakk­inn haggi í engu heim­ildum íslenskra stjórn­­­­­valda til að banna fram­­­sal á eign­­­ar­rétti að orku­auð­lindum og rétti Íslands til að ákveða með hvaða skil­yrðum orku­auð­lindir lands­ins eru nýtt­­­ar.

Í sept­em­ber vann svo lög­mað­ur­inn Birgir Tjörvi Pét­­ur­s­­son grein­ar­gerð þar sem fjallað var um hinn svo­­kall­aða þriðja orku­­pakka Evr­­ópu­­sam­­bands­ins og komst að því að hann kalli ekki á end­ur­skoðun EES.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár