64 meðlimir kórs Rauða hersins fórust í Svarta hafinu

Allir 92 farþegar rússnesku herþotunnar sem fórst í Svarta hafinu í morgun eru taldir af. Vladimír Pútín, forseti Rússlands, hefur lýst yfir þjóðar­sorg á mánudag vegna slyssins en um borð voru meðal annars þorri Alexandrov-kórsins, kórs Rauða hersins í Rússlandi.

Lík ellefu farþega hafa fundist en engar fregnir eru af eftir­lifendum. Vélin hvarf af ratsjám fáeinum mínútum eftir að hún tók á loft frá Sochi, þar sem hún hafði stoppað eftir eldsneyti á leið sinni frá Moskvu til flota­stöðvar rússneska hersins í Latakíu í Sýrlandi.

Um borð voru hermenn, fjölmiðla­menn og 64 meðlimir Alexandrov-kórsins heims­fræga. Kórinn átti að syngja á nýárs­skemmtun fyrir hermenn í flota­stöðinni. Af hljóð­upptökum úr stjórn­klefa flug­vélarinnar að dæma virðist ekkert hafa komið upp á áður en vélin hvarf af ratsjám.

Meira en 100 kafarar hafa leitað að flaki vélarinnar og farþegunum, samkvæmt upplýsingum rússneska varnarmála­ráðuneytisins. Rússneskum stjórn­völdum er ekki unnt að greina frá því hvað olli því að flugvélin fórst og segja að „allt komi til greina“ í þeim efnum, jafnvel að um væri að ræða hryðju­verk.

Skarð hoggið í frægasta kór í heimi

Alexandrov-kórinn er einn frægasti kór í heimi hefur sungið víða um heim allt frá stofnun. Um er að ræða opinberan kór Rauða hersins sem nefndur er eftir fyrsta stjórn­anda hans Alexander Vasilyevich Alexandrov, sem samdi meðal annars þjóðsöng Sovét­ríkjanna. Kórinn var stofnaður á milli­stríðs­árunum og er af mörgum talinn vera einn besti kór í heiminum, í það minnsta einn sá agaðasti.

Með kórnum skemmta oft dansarar og hljómsveit en þessi kór er sá eini sem getur stært sig af því að vera kór Rauða hersins. Hér að neðan má sjá kórinn flytja Kalinka eftir Ivan Larionov með hljómsveit.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár