Grínisti birtir þátt um Ísland - kynnir hótel Hreiðars Más

Hótel Hreiðars Más Sigurðs­sonar fær góða land­kynningu í þættinum Travel Man. Einn þekktasti grínisti Bretlands, Richard Ayoade, er þátta­stjórnandi og segir hann Ísland hafa eftir­heimsenda ásýnd.

Travel man
Travel man Ayode fer í Bláa lónið. Mynd: Channel 4

Einn þekktasti grínisti Bretlands, Richard Ayoade, dvelur á Ísland í tvo sólar­hringa í einum þætti þáttaraðarinnar Travel Man. Þættirnir eru sýndir á Channel 4. Landsmenn ættu helst að kannast við hann úr þáttunum IT Crowd og  Gadget Man sem sýndir voru á RÚV. Í hverjum þætti Travel Man ferðast hann um nýtt land með öðrum grínista en með honum í Íslandsför var Jessica Hynes, sem er einna þekktust fyrir leik sinn í þáttunum Spaced. Þáttinn um Ísland má sjá í heild sinni hér fyrir neðan.

Richard spyr Jessicu hvernig Íslandi kom henni fyrir fyrstu sjónir á Reykja­nesbrautinni. „Það er ekki mikið af byggingum hérna,“ segir hún og Richard tekur undir og segir að vissulega sé ekki mikið um háhýsi á Reykjanesinu.

Neyta hákarls og brennivíns
Neyta hákarls og brenni­víns Ayoade og Hynes borða íslenskan mat.

Tvíeykið fer því næst á Ion Hotel sem er í eigu Hreiðars Más Sigurðs­sonar, fyrr­verandi forstjóra Kaupþings, sem nú situr á Kvía­bryggju vegna dóms fyrir markaðs­misnotkun. Ekki er hægt að segja annað en hótelið fái góða kynningu en mörg skot eru af því bæði innan og utan. Richard lýsir enn fremur lands­laginu sem og í eftir­heimsenda (e. post-apocalyptic) verki. Hótelið er á Nesja­völlum og var nýverið gerbreytt í lúxus­hótel. Tug milljóna króna tap varð á rekstri hótelsins árið 2013.

Þá smakka þau meðal annars hákarl og brennivín. „Þetta bragðast bæði hræðilega,“ segir Richard.

 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár