Helmingur unglinga á Íslandi vill búa í útlöndum í framtíðinni

Mun fleiri íslenskir unglingar en áður vilja búa í útlöndum í fram­tíðinni. Mun fleiri búast við því að sú verði raunin. Þetta eru niður­stöður nýrrar rann­sóknar Háskólans á Akureyri, sem er hluti af evrópsku ESPAD rann­sókninni, en greint er frá málinu á vefsíðu Akureyri vikublaðs.

ESPAD-rann­sóknin er lögð fyrir alla unglinga í 10. bekk á fjögurra ára fresti. Þóroddur Bjarnason prófessor í félags­fræði er stjórn­andi rann­sóknarinnar hér á landi og hann segir búsetu­óskir unglinga gefa vísbendingu um stemmninguna í unglinga­samfélaginu og að hluta til í samfélaginu í heild. „Svör sextán ára unglinga eru vitaskuld ekki áreiðanlegur mæli­kvarði á ákvarðanir hvers og eins í fram­tíðinni. Sumir hætta við að flytja og aðrir flytja þótt þeir hafi ekki ætlað sér það á unglings­árum.“ Hann segir hins vegar að íslenskar rann­sóknir hafi sýnt að búsetu­fyrir­ætlanir unglinga hafi býsna gott forspár­gildi fyrir þróun einstakra byggðar­laga yfir lengri tíma.

Fyrir hrun sagðist um þriðjungur íslenskra unglinga vilja helst búa erlendis, en hlut­fallið er nú sem fyrr segir helmingur. Ekki gera allir ráð fyrir því að þessar óskir gangi eftir, en þó hefur sá fjöldi farið úr 18 prósentum árið 2003 í 37 prósent nú.

Þá sjá færri unglingar höfuð­borgar­svæðið fyrir sér sem framtíðar­heimili, eða 27 prósent á móti 38 prósentum fyrir tólf árum síðan. Unglingar sem búa á höfuð­borgar­svæðinu vilja í minni mæli búa þar áfram. Lands­byggðar­unglingar vilja líka í minni mæli búa áfram á lands­byggðinni.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár