Hafrannsóknarstofnun fær fé frá báðum helstu hagsmunaðilunum í laxeldi

Stofnunin er helsti styrkþegi Umhverfis­sjóðs sjókvíaeldis sem er í eigu eldis­fyrirtækja.

Hafrrannsóknastofnun fær fé frá hagsmunaaðilum
Hafr­rann­sókna­stofnun fær fé frá hags­muna­að­ilum Haf­rann­sókna­stofnun er bæði fjár­hags­lega tengd veiði­fé­lögum í íslenskum lax­veiðiám og hags­muna­sam­tökum eld­is­fyr­ir­tækja. Myndin er tekin hjá Laxeldi Aust­fjarða í Berufirði.

 

Hafrannsókna­stofnun, ríkis­rekin stofnun sem rannsakar meðal annars áhrif fiskveiða og fiskeldis á lífríki sjávar, hefur bæði þegið greiðslur frá hagsmuna­samtökum laxeldis­fyrirtækja á Íslandi og eins frá veiði­félagi laxveiði­árinnar Langa­dalsár í Ísafjarðar­djúpi. Í báðum tilfellum eru greiðslurnar fyrir vinnu sem stofnunin innir af hendi fyrir viðkomandi aðila. Um er að ræða vinnu sem tengist mati á áhrifum fiskeldis á lífríki Íslands. 

„Sérstak­lega er Sigurður Guðjónsson forstjóri vanhæfur til þess að taka þátt og stýra gerð áhættu­matsins“ 

Héraðs­frétta­blaðið Vestfirðir gerði vinnu Hafrannsókna­stofnunar fyrir veiði­félag Langa­dalsár að umtals­efni í blaðinu í lok ágúst og sagði Kristinn Gunnarsson, ritstjóri blaðsins, þá í leiðara að Hafrannsókna­stofnun væri vanhæf til að gefa álit á „sambúð laxeldis og laxveiða“ vegna fjárhagslegra tengsla við veiði­félög í íslenskum laxveiðiám. Hafrannsókna­stofnun skilaði nýlega skýrslu um laxeldi í Ísafjarðar­djúpi þar sem lagst var gegn því að laxeldi með frjóum löxum yrði í …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Laxeldi

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár