Útlit fyrir að ríkið láni Íslandspósti 500 milljónir

Rík­is­stjórnin bregst við lausa­fjár­vanda Íslands­pósts og ófjár­mögn­uðum kostn­aði við alþjón­ustu.

Útlit er fyrir að ríkið veiti Íslands­pósti allt að 500 millj­óna króna lán vegna lausa­fjár­vanda og ófjár­magn­aðs kostn­aðar við alþjón­ustu. Málið hefur verið rætt í rík­is­stjórn sam­kvæmt heim­ildum Stund­ar­innar og kynnt fjár­laga­nefnd Alþingis. Má ætla að heim­ild til lán­veit­ing­ar­innar rati inn í fjár­auka­lög yfir­stand­andi árs. 

Nýlega birti Íslands­póstur hálfs­árs­upp­gjör þar sem fram kom að fyr­ir­tækið hefði tapað 161,2 millj­ónum á fyrri helm­ingi árs­ins. Er áætlað að tekjur fyr­ir­tæk­is­ins drag­ist saman um hátt í 400 millj­ónir á þessu ári vegna fækk­unar bréf­send­inga. Ófjár­magn­aður kostn­aður vegna svo­kall­aðrar alþjón­ustu Íslands­pósts var um 600 millj­ónir króna í fyrra og er reiknað með að hann nemi um 700 millj­ónum árið 2018.

Ráð­gjaf­ar­fyr­ir­tækið Copenhagen Economics vann skýrslu fyrir Íslands­póst í apríl síð­ast­liðnum um þær fjár­hags­legu byrðar sem fylgja alþjón­ustu­skyld­unni. Slík skylda er lögð á póst­fyr­ir­tæki um allan heim til að tryggja að öllum borg­urum sé veitt grunn­póst­þjón­usta á jafn­rétt­is­grund­velli. Felur alþjón­ustu­skyldan í sér ýmsar kröfur, t.d. skyldu til að safna saman og flytja ákveðnar teg­undir af pósti, flytja póst ákveðið marga daga í viku, tryggja að verð sé við­ráð­an­legt og sam­ræmt og að póstur ber­ist innan til­tek­ins tíma­frests frá póst­lagn­ingu.

Fram kom í til­kynn­ingu frá Íslands­pósti vegna afkomu fyr­ir­tæk­is­ins á fyrstu sex mán­uðum árs­ins að stjórn­endur fyr­ir­tæk­is­ins ynnu nú að því „í sam­vinnu við stjórn­völd að leita leiða til að tryggja fjár­mögnun alþjón­ust­unnar og laga hana að breyttum for­send­um“. Samkvæmt heim­ildum Stund­ar­innar er áformað að mæta lausa­fjár­þörf­inni með því að rík­is­sjóður veiti allt að 500 millj­óna króna lán til allt að 12 mán­aða. 

Íslands­póstur er í eigu rík­is­ins og er Ísland eina landið á Evrópska efna­hags­svæð­inu þar sem einka­réttur á póst­þjón­ustu hefur ekki verið felldur niður. Í fyr­ir­liggj­andi frum­varps­drögum Sigurðar Inga Jóhanns­sonar, sam­göngu- og sveit­ar­stjórn­ar­ráð­herra, er lagt til að einka­réttur rík­is­ins verði afnum­inn og alpóst­þjón­usta veitt á mark­aðs­legum for­sendum í sam­ræmi við þriðju póst­til­skipun Evr­ópu­sam­bands­ins.

Stundin hefur óskað eftir ítar­legri upp­lýs­ingum um málið frá fjár­mála­ráðu­neyt­inu og mun upp­færa frétt­ina eftir að þær ber­ast.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Ríkisstjórn Katrínar

FréttirRíkisstjórn Katrínar

„Ég hef miklu meiri áhyggjur af vinstr­inu á Íslandi heldur en VG“

Drífa Snædal sagði eft­ir­minni­lega árið 2017 að það yrði „eins og að éta skít í heilt kjör­tíma­bil“ fyrir Vinstri græn að fara í rík­is­stjórn­ar­sam­starf með Sjálf­stæð­is­flokknum. Staða hennar gamla flokks í dag kemur henni ekki á óvart. „Fyrir vinstrið í fram­tíð­inni þá þarf það nátt­úr­lega að hafa afleið­ingar fyrir flokk að miðla málum svo hressi­lega að það er ekk­ert eftir af hug­sjón­unum,“ segir Drífa.
GreiningRíkisstjórn Katrínar

Sambúðin sem sært hefur VG nán­ast til ólífis

Vinstri græn sungu hástöfum á lands­fundi sínum fyrir rúmu ári: „Það gæti verið verra.“ Nú hefur það raun­gerst. Flokk­ur­inn skrapar botn­inn í fylg­is­mæl­ingum og hefur ekki sam­mælst um nýja for­ystu eftir brott­hvarf eins vin­sælasta stjórn­mála­manns lands­ins og flokk­ur­inn skrapar botn­inn í fylg­is­mæl­ingum. Hvort flokk­ur­inn sé nægi­lega sterkur til að spyrna sér upp og forða sér frá útrým­ingu á eftir að koma í ljós.

21 mín. lestur

GreiningRíkisstjórn Katrínar

Róttækur hug­sjóna­flokkur verður að borg­ara­legum valda­flokki

Vinstri græn hafa á síð­ustu fimm og hálfu ári tapað trausti og trú­verð­ug­leika, gefið afslátt af mörgum helstu stefnu­málum sínum og varið hegðun og aðgerðir sem flokk­ur­inn tal­aði áður skýrt á móti. Samhliða hefur rót­tækt fólk úr gras­rót­inni yfir­gefið Vinstri græn, kjós­enda­hóp­ur­inn breyst, hratt gengið á póli­tíska inn­eign Katrínar Jak­obs­dóttur og fylgi flokks­ins hrunið. Þetta er fórn­ar­kostn­aður þess að kom­ast að völdum með áður yfir­lýstum póli­tískum and­stæð­ingum sínum.

10 mín. lestur

ÚttektRíkisstjórn Katrínar

Stjórn­ar­sátt­mál­inn er stefna Fram­sókn­ar­flokks­ins

Ný rík­is­stjórn Katrínar Jak­obs­dóttur er miðju­sækin íhalds­stjórn, að mati Eiríks Berg­manns Ein­ars­sonar stjórn­mála­fræð­ings. Gera á allt fyrir alla, að mati Stefaníu Ósk­ars­dóttur stjórn­mála­fræð­ings. Sum þeirra mála sem ekki náðu fram að ganga á síð­asta kjör­tíma­bili ganga aftur í sátt­mál­anum en ann­arra sér ekki stað.

Mest lesið

4
Innlent

Hætta á að lánin hækki þó íbúða­verð lækki

Már Wolfgang Mixa hag­fræði­pró­fessor segir að stór hluti eigin fjár íbúða­eig­enda gæti þurrkast út á kom­andi mán­uðum. Verð­tryggðar fast­eigna­skuldir hækki í verð­bólgu­tíð sam­hliða því að íbúða­verð gæti lækkað. Hann leggur til að verð­tryggð hús­næð­is­lán fylgi íbúða­verði en ekki vísi­tölu neyslu­verðs. Þá myndu bank­arnir bera hluta áhætt­unnar.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár