Líklegt að miklar hækkanir verði á húsnæðisverði yfir sumarmánuðina

Verðlag mun hækka um 0,1 prósent í apríl, samkvæmt spá greiningar­deildar Arion banka sem birt var í dag. Það er mun minna en sú mikla hækkun, 1,02 prósent, sem varð á verðlagi í mars­mánuði, aðallega vegna skarprar hækkunar á húsnæðis­verði. Gangi spáin eftir mun ársverð­bólga lækka úr 1,6 prósentum í 1,4 prósentum. Helstu ástæður þessarar þróunar er lækkun á flug­fargjöldum til útlánda.

Greiningar­deildin spáir hóflegri hækkun húsnæðis­verðs í þessum mánuði en telur það ekki ólíklegt að hækkanir á húsnæðis­verði muni verða miklar yfir sumar­mánuðina sem eru framundan. „Við teljum að sú verulega kaupmáttar­aukning sem hefur raungerst síðastliðið ár, batnandi skulda­staða heimila, skulda­leið­réttingin og áfram­haldandi aukin eftir­spurn muni áfram þrýsta húsnæðis­verði upp á við næstu mánuði,“ segir í greiningunni.

Húsnæðis­verð hefur þegar hækkað um 4,2 prósent frá því í desember síðastliðnum, en niður­stöður skulda­leið­réttingar­áforma ríkis­stjórnarinnar voru kynnt í nóvember í fyrra. Greiningardeildir bankanna hafa tengt aukna verðbólgu, að minnsta kosti að hluta, við við „leið­réttinguna“ enda komu áhrif hennar á greiðslu­byrði og veðrými lántakenda að langmestu leyti fram á þessu tímabili.

Greiningin spáir því líka að eldsneytis­verð muni hækka um 1,5 prósent á milli mánaða en að verð á díselolíu lækki um 0,9 prósent. Aðrir liðir neyslu­vísitölu sem mælir verðbólgu hafa minni áhrif í þessum mánuði.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár