Leiðréttingin ýtir undir verðbólgu

Vísitala neyslu­verðs, sem mælir verðbólgu í landinu, hækkaði um eitt prósent milli febrúar og mars og hefur ekki hækkað svo snarpt milli mánaða síðan í febrúar 2013. Greiningar­deild Íslands­banka bendir á að húsaleiga hafi verið sá liður sem hækkaði mest milli mánaða og endur­spegli þróun íbúða­verðs. Íbúðaverð hefur hækkað um 4,2 prósent á síðustu þremur mánuðum. Það er nærri jafn mikil hækkun og níu mánuði á undan. „Húsnæðis­liðurinn skýrir raunar stærstan hluta verð­bólgunnar undan­farna 12 mánuði, enda mælist 0,1% verð­hjöðnun á því tímabili ef miðað er við vísitölu neyslu­verðs án húsnæðis,“ segir í pósti greiningar­deildarinnar.

Þessar hækkanir má tengja, að minnsta kosti að hluta, við „leið­réttinguna“ svokölluðu enda komu áhrif hennar á greiðslu­byrði og veðrými lántakenda að langmestu leyti fram á þessu tímabili, segir greiningar­deildin ennfremur.


„Undan­farna 12 mánuði hefur hækkunin reyndar verið tvöfalt meiri á fjölbýli á höfuð­borgar­svæðinu (tæp 12%), en á sérbýli á höfuð­borgarsvæði sem og íbúða­verði á lands­byggð, sem hefur hækkað um tæp 6% á sama tíma,“ segir í markaðs­punktum frá greiningar­deildinni í dag um hækkun verð­bólgunnar.


Verðbólga í landinu mælist nú 1,6 prósent en var 0,8 prósent í síðasta mánuði. Verð­bólgan er mæld sem breyting á vísitölu neyslu­verðs síðustu tólf mánuði. Hagstofan birti í morgun upplýsingar um vísitölu neyslu­verðs í mars­mánuði. Að mati greiningar­deildar Íslands­banka eru horfur á að verð­bólgan verði áfram á sama róli næstu mánuði en muni líklega aukast jafnt og þétt á seinni helmingi árs.


ferd-til-fjar_bordi
ferd-til-fjar_bordi
Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár