Ráðuneytið vissi að LOGOS hefði unnið fyrir Landsnet

Ragnheiður Elín Árnadóttir er iðnaðar- og viðskiptaráðherra.
Ragn­heiður Elín Árna­dóttir er iðn­aðar- og við­skipta­ráð­herra. Mynd: Birgir Þór Harðarson

LOGOS lögfræði­þjónusta, sem vann lögfræði­álit fyrir iðnaðar- og viðskipta­ráðuneytið vegna frumvarps um að heimila Landsneti að leggja raflínur að iðnaðar­svæðinu á Bakka, hefur einnig unnið umtals­vert fyrir Landsnet á undan­förnum árum. Ráðuneytið segist hafa vitað af því að LOGOS hafi unnið fyrir Landsnet en að það telji ekki að um hagsmuna­árekstur sé að ræða.

Þetta kemur fram í svari iðnaðar- og viðskipta­ráðuneytisins við fyrir­spurn Kjarnans um málið.

Hörð gagnrýni stjórnarandstöðu

Úrskurðar­nefnd umhverfis- og auðlinda­mála stöðvaði framkvæmdir vegna lagningu á raflínu frá Þeista­reykjum og Kröflu­svæðinu að iðnaðar­svæðinu á Bakka í ágúst. Ástæðan var kæra Land­verndar vegna málsins. Niður­staða nefndarinnar á að liggja fyrir um miðjan október.

Það þótti hins vegar of langur tími til að bíða eftir slíkri niður­stöðu og því ákvað ríkis­stjórnin að leggja fram frumvarp um að kæru­ferlið yrði stöðvað og framkvæmdum áfram­haldið. Það frumvarp var afgreitt úr atvinnu­veganefnd í vikunni.

Stjórnar­andstaðan hefur gagnrýnt frum­varpið harðlega. Svandís Svavars­dóttir, þing­flokks­formaður Vinstri grænna og fyrr­verandi umhverfis­ráðherra, sagði til að mynda á Alþingi á fimmtudag að hún teldi að frum­varpið brjóti gegn stjórnar­skrá Íslands og alþjóð­legum skuld­bindingum. Þar kom einnig fram að hún gefi lítið fyrir lögskýringar ríkis­stjórnarinnar í málinu.

Ragn­heiður Elín Árna­dóttir, iðnaðar- og viðskipta­ráðherra, svaraði því til að við undir­búning málsins hafi verið fengið utan­aðkomandi lögfræði­álit frá „einni stærstu lögfræði­stofu hérlendis, LOGOS.“

„Ragn­heiður Elín sagði að „samkvæmt þeim upplýsingum og álitum sem við öfluðum okkur þá er þarna ekki um möguleg brot á þessum samnings­skuld­bindingum. Þessi lögfræði­stofa tók enn fremur að sér að skoða þetta með tilliti til stjórnar­skrárinnar og komst að sömu niður­stöðu, að þarna væri ekki verið að brjóta stjórnar­skrá.“

Vissu af vinnu LOGOS fyrir Landsnet

LOGOS lögmanns­þjónusta hefur veitt Landsneti, því fyrirtæki sem er að leggja umræddar raflínur að Bakka, víðtæka ráðgjöf og lögfræði­þjónustu á undan­förnum árum. Á heima­síðunni Legal500 segir meðal annars í texta frá LOGOS að stofan hafi verið ráðgjafi Landsnets við kaup og lagningu neðan­jarðar­raflína.

Þá varði lögmaður frá LOGOS Landsnet í máli sem snerist um raforku­afhendingufyrir Hæstarétti í sumar.

Kjarninn beindi fyrir­spurn til iðnaðar- og viðskipta­ráðuneytisins vegna þess að LOGOS hafi var fengið til að vinna lögfræði­matið sem er fylgi­skjal með frum­varpinu sem heimilar Landsneti að halda áfram vinnu við að leggja raflínur að iðnaðar­svæðinu Bakka.

Í svari ráðuneytisins kemur fram að það hafi vitað að LOGOS hafi veitt Landsneti ýmsa lögfræði­þjónustu á undan­förnum árum og tiltekið er að aðrar lögfræði­stofur hafi einnig unnið verkefni fyrir Landsnet. „Ráðuneytið hefur áður leitað til LOGOS með ýmis lögfræðileg úrlausnar­efni og ber fullt traust til faglegra vinnu­bragða hjá LOGOS og hlut­lausrar lögfræði­ráðgjafar. LOGOS er stærsta lögmanns­stofa landsins og hefur um langt skeið unnið verkefni fyrir fjölda fyrir­tækja og stofnana í landinu. Hin lögfræði­lega álitsgerð LOGOS sneri að mati á stjórn­skipulegum atriðum, aftur­virkni og mati á alþjóð­legum samningum. Því þurfti lögmann­stofu með breiða þekkingu og sérfróðra aðila á sínum snærum til að taka slíkt verkefni að sér og að fenginni reynslu treysti ráðuneytið LOGOS til að taka slíkt mat að sér.“

Í svarinu segir enn fremur að fulltrúar LOGOS hafi verið kallaðir á fund atvinnu­veganefndar til að fara yfir lögfræði­álitið. Þar hafi þeir verið sérstak­lega spurðir út í mögulega hagsmuna­árekstra við gerð matsins vegna þess að LOGOS hefði unnið fyrir Landsnet. „Á fundinum kom fram að ávallt sé gætt að því í innri verk­ferlum hjá LOGOS að hagsmunir skarist ekki og að lögfræði­ráðgjöf sé ávallt hlutlaus og fagleg. Í þessu tilviki hafi þannig t.d. sá lögmaður og eigandi hjá LOGOS sem var ábyrgur fyrir umræddu lögfræði­áliti ekki komið að verkefnum fyrir Landsnet áður.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár