Í þá tíð… Fjöldasjálfsmorð Heaven‘s Gate

Tugir meðlima sértú­ar­safn­að­arins Heaven‘s Gate fundust látnir eftir fjölda­sjálfsmorð. Fólkið vonaðist til þess að sálir þeirra myndu hverfa upp í geimskip sem fylgdi hala­stjörnu sem sigldi nálægt Jörðu.

Óhugnanleg sjón blasti við lögreglumönnum sem komu inn í hýbýli Heaven‘s Gate þar sem lík 39 meðlima lágu, snyrtilega til lögð.
Óhugn­an­leg sjón blasti við lög­reglu­mönnum sem komu inn í hýbýli Heaven‘s Gate þar sem lík 39 með­lima lágu, snyrti­lega til lögð.

Á þessum degi fyrir réttum 20 árum síðan, hinn 26. mars 1997, fékk lögreglan í San Diego í Banda­ríkjunum nafnlausa ábendingu um að eitthvað einkennilegt væri á seiði í stórhýsi einu í úthverfi borgarinnar. Þegar lögreglu­menn komu á svæðið fundu þeir 39 lík, öll klædd í svarta íþrótta­galla og svart­hvíta Nike skó, með plastpoka á höfðinu undir fjólubláu klæði.

Fólkið reyndist vera meðlimir sértrúar­safnaðarins Heaven‘s Gate, og hafði stytt sér aldur með því að taka inn lyfja­blöndu áður en þau drógu plast­pokana yfir höfuðið og köfnuðu.

Á meðal þeirra látnu var forvígis­maður og annar stofnenda safnaðarins, Marshall Applewhite að nafni, en þessi sorgar­atburður átti sér aldar­fjórðungs forsögu þar sem fram­vindan virðist oft eins og tekin upp úr vísinda­skáldsögu - enda sóttu stofnendurnir innblástur í skáldskap og sjónvarps­þætti.

Tvíeykið og Geimveruguðinn

Upphaf safnaðarins er rekið til þess þegar leiðir Applewhites og Bonnie Nettles lágu saman árið 1972. Applewhite hafði komið víða við en hafði, þegar þarna kom við sögu, nýlega verið sagt upp störfum sem tónlistar­kennari við háskóla í Texas vegna sambands síns við nemanda. Nettles var hjúkrunar­kona á einhvers konar stofnun þar sem Applewhite leitaði sér lækninga vegna geðrænna vandamála.

Eftir stífar trúspekilegar vanga­veltur töluðu þau sig niður á að þau væru vottarnir tveir sem talað er um í Opinberunarbók Jóhannesar. Þau væru verkfæri almættisins til að uppfylla lögmál Biblíunnar.

Með þessa fullvissu í farte­skinu, og fátt annað, lögðu þau land undir fót og ferðuðust um landið þvert og endilangt til að afla trú sinni fylgdar­manna. Megin­stefið í þeirra boðskap var að Guð biblíunnar væri í raun afar háþróuð geimvera sem hefði í huga að „endur­vinna“ Jörðina og aðeins þeir sem höguðu lífi sínu og trú eftir forskriftinni ættu þess kost að láta lyfta sér upp á næsta tilveru­stig.

Þrautseigjan borgaði sig

Ekki blés byrlega fyrir þeim á ferða­laginu og þau voru í meira en ár að heilla fyrsta meðliminn um borð, sem reyndist þó ekki þaul­setinn og hvarf á brott skömmu síðar. Eljan og sannfæringin sem knúði Applewhite og Nettles áfram skilaði sér þó að lokum og um miðjan áttunda áratuginn sóttu jafnan tugir eða hundruð manna kynningar­fundi þeirra og undir lok áratugarins taldi söfnuðurinn um 70 fasta meðlimi og flakkaði milli samastaða í Suður-Kaliforníu.

Eitt af aðaláherslu­málum safnaðarins var einstreng­ingsleg eins­leitni þar sem hvert smáatriði í daglegu lífi safnaðar­meðlima var útlistað og fylgjt eftir af mikilli nákvæmni. Meðal annars var stærð og þykkt morgun­verðar­pönnu­kakanna stöðluð, sem og magn síróps og smjörs sem átti að nota.

Engum sögum fer af nokkurri kúgun, arðráni eða misnotkun á meðlimum Heaven‘s Gate, enda kom fólk og fór eins og því sýndist og stundaði vinnu sína á daginn. Raunar voru þau afar vel séð, enda stundvís og lúsiðin.

Internetbyltingin og „Brottförin“

Nettles lést úr krabba­meini árið 1985 og við það hrikti eilítið í kenningar­kerfi Heaven‘s Gate, en við endur­skoðun þótti ljóst að Nettles væri komin um borð í geim­skipið góða sem sigldi í kjölfar hala­stjörnunnar Hale-Bopp og nálgaðist Jörðina óðfluga.

Applewhite og fylgjendur hans lögðu því mikla áherslu á að breiða fagnaðar­erindið út sem víðast og tóku í sína þjónustu nýjustu tækni, hið svokallaða Internet.

Heaven‘s Gate setti meðal annars upp vefsíðu, sem var ekki á allra færi á miðjum tíunda áratugnum, og raunar var vefhönnun ein helsta tekjulind safnaðarins á þeim tíma. Í gegnum síðuna var hægt að nálgast fræðslu­efni og myndskeið og er raunar enn þann dag í dag þar sem síðan er enn uppi og er viðhaldið af tveimur eftir­lifandi meðlimum. Útlit hennar er hins vegar óbreytt og ber sannarlega keim af þeim tíðaranda sem ríkti í vefhönnun á þessum spennandi mótunar­tíma netsins.

Þegar styttist í að Hale-Bopp kæmist sem næst jörðinni, á 4.000 ára sporbaug sínum um sólina, fóru meðlimir að hugsa sér til hreyfings.

Hér má sjá lokaávarp Applewhites, sem var tekið upp nokkrum dögum fyrir „brottförina“, þegar meðlimir tóku inn lyf og lögðust til hinstu hvílu.

Eftir ítarlegan undir­búning og eina loka­máltíð á veitinga­stað í nágrenninu, þar sem allir fengu sér það nákvæmlega sama að borða, hófust þeir handa við „brott­förina“ eins og þeir kölluðu það, þegar þeir hugðust kasta af sér hlekkjum hins holdlega og svífa til móts við örlögin og æðra tilveru­stig í geimnum.

Í þrjá daga voru meðlimir teknir í litlum hópum og aðstoðaðir við gjörninginn, þar til enginn varð eftir, nema eins, og síðar kom í ljós, hinir tveir sem sjá um síðuna og samskipti við áhugasama.

Heaven‘s Gate hefur enn þann dag í dag sterka samfélags­lega skírskotun um hinn vestræna heim, enda vekja svokallaðir „Death-Cults“ alltaf mikla forvitni. Heaven‘s Gate er oft tiltekið í svipuðu samhengi og söfnuður Jim Jones þar sem hundruð manna létust, Söfnuð Sólhofsins í Sviss þar sem 48 létust, og söfnuð Davids Koresh í Waco í Texas þar sem 80 manns létust í eldi eftir skot­bardaga við lögreglu.

Þó að meðlimirnir tveir séu enn í samskiptum við áhugasama segjast þeir alls ekki vera að leita að fleiri meðlimum. Söfnuðurinn sé ekki til í dag og þeir ráða fólki frá því að leika eftir „brott­förina“, enda hafi það ekkert upp á sig fyrst að Hale-Bopp er horfin á braut. Þau bíða hins vegar þolinmóð eftir því að þeirra tími renni upp og þau fái að stíga upp á hærra stig og hitta trúbræður og -systur sínar á ný.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár