Sérstakur saksóknari fær aukafjárveitingu

Gert er ráð fyr­ir um 215 millj­óna króna auka­fjár­veit­ingu til embætt­is sér­staks sak­sókn­ara í fjár­auka­lög­um sem tek­in voru til 1. umræðu á Alþingi í gær. Frá þessu er greint í Morgun­blaðinu í dag.

Að auki er gert ráð fyr­ir 150 millj­óna króna tíma­bundnu fram­lagi til eins árs sem nýta á í að ljúka eldri mál­um embætt­is­ins, að því er segir í grein Morgun­blaðsins. Alls 365 millj­ón­um króna meira en gert hafði verið ráð fyr­ir í fyrri áætl­un­um í fjár­lög­um.

Í gild­andi fjár­lög­um var fram­lag til embætt­is­ins lækkað um 300 milljónir króna í takt við áætl­un þess um fram­gang mála, og sagði Ólafur Þór Hauksson, sérstakur saksóknari, meðal annars að þetta myndi þýða að hætta þyrfti rannsókn mála og segja upp starfs­fólki. „Sam­kvæmt nýj­um upp­lýs­ing­um frá embætt­inu mun sú áætl­un ekki stand­ast,“ seg­ir í fjár­auka­lög­um.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár