Í þá tíð… Valdarán í Alsír og endurkoma DeGaulle

Uppreisn franska hersins í Alsír var fyrsta skrefið í átt að endurkomu de Gaulle hers­höfðingja á valdastól og stofnun fimmta lýðveldisins

Margir forsvarsmenn franska herliðsins í Alsír, með liðsstyrk svartfætlinga, evrópskra innflytjenda og afkomenda þeirra, tóku völdin í Algeirsborg og þrýstu á um breytingar í frönsku stjórnkerfi og að Charles de Gaulle yrði gerður að leiðtoga Frakklands á
Margir for­svars­menn franska her­liðs­ins í Alsír, með liðs­styrk svart­fæt­linga, evr­ópskra inn­flytj­enda og afkom­enda þeirra, tóku völdin í Algeirs­borg og þrýstu á um breyt­ingar í frönsku stjórn­kerfi og að Charles de Gaulle yrði gerður að leið­toga Frakk­lands á Mynd: Thorgils Jonsson

Á þessum degi fyrir réttum 59 árum síðan, hinn 13. maí 1958, hrifsuðu forvígis­menn franska heraflans í Alsír, sem þá laut stjórn Frakk­lands, til sín völd í Alsír. Þessar aðgerðir voru fyrst of fremst til þess fallnar að mótmæla getuleysi stjórn­valda í París í að styðja við herinn í baráttu gegn uppreisn sjálfstæðis­sinna í þessari gömlu nýlendu.

Frönsk yfirráð í rúma öld

Frakkar lögðu Alsír undir sig árið 1830. Landinu var skipt upp í þrjú héruð og íbúar þess voru skipaðir franskir þegnar, en höfðu engu að síður ekki franskan ríkis­borgararétt. Á árunum sem fylgdu fluttu hundruð þúsunda Frakka og annarra Evrópubúa til Alsír til að freista gæfunnar, enda var þar auðvelt aðgengi að landi þar sem innflytjendum var hyglað á kostnað innfæddra.

Með árunum urðu afkomendur evrópskra innflytjenda, svokallaðir Pied-Noires – Svartfætlingar, rótgrónir og fjölmennir í Alsír. Þeir þóttu hins vegar njóta forréttinda miðað við þá sem voru af alsírskum ættum, og múslimar, og það olli kergju milli hópanna sem stig­magnaðist eftir því sem á leið 20. öldina.

Múslimar upplifðu sig afskipta og svo fór að krafa um sjálfs­ákvörðunar­rétt, og síðar sjálf­stæði, varð sífellt háværari og endaði með stríði. Þjóð­frelsis­hreyfingin (Front de Libération Nationale) hóf skærur gegn herra­þjóðinni í árslok 1954 og stóðu átökin, sem ganga undir nafninu Alsírs­stríðið, allt fram til ársins 1962 þegar Alsír fékk sjálf­stæði.

Lýðveldi á heljarþröm

Á meðan sífellt hitnaði í hlóðunum undir suðu­pottinum handan Miðjarðar­hafsins kraumaði ákaft í frönsku samfélagi þar sem pólitísk kreppa batt stjórn landsins í báða skó.

Eftir seinni heims­styrjöld var franskt stjórn­kerfi reist við að nýju undir merkjum „fjórða lýðveldisins“, þar sem völd þingsins voru tryggð. Forsetinn var valdalaus að mestu, en framkvæmda­valdið var í höndum forsætis­ráðherra sem var kjörinn af löggjafanum, sem hafði vald til að setja ríkis­stjórnir af með einföldum meirihluta (þarf ekki hreinan meirihluta).

Þetta kerfi reyndist afar óstöðugt sem leiddi til tíðra stjórnar­skipta sem hömluðu mjög stjórn landsins á árunum upp úr miðjum sjötta áratugnum, á meðan franskt herlið barðist við skæruliða í Alsír, í stríði sem almennir borgarar í Frakk­landi voru alls ekki á einu máli um að væri réttlætanlegt.

Skellurinn og endurkoma frelsishetjunnar

Náðarhögg fjórða lýðveldisins var greitt í maí 1958 þegar hópur herforingja og annarra í Alsír greip til örþrifa­ráða til að koma í veg fyrir að slitnaði á milli Frakk­lands og Alsír. Jacques Soustelle, fyrr­verandi land­stjóri í Alsír, hafði snúið aftur til Parísar til að vinna að endurkomu Charles de Gaulle hers­höfðingja fram á stjórnar­sviðið, enda var hann af mörgum álitinn hæfasti einstaklingurinn til að halda ríkinu saman á rósturtímum. Hann og bandamenn hans í Alsír, hrundu svo af stað valdaráni, hinn 13. maí 1958 þar sem þess var krafist að de Gaulle yrði útnefndur forsætis­ráðherra og fengi sérstök völd til að koma í veg fyrir að Alsír verði „yfirgefið“. Þegar þar kom við sögu hafði de Gaulle, frelsis­hetjan sem stýrði landinu á fyrstu árunum eftir seinna stríð, haldið sig utan stjórn­mála í tólf ár.

Herliðið frá Alsír gerði sig líklegt til að halda upp til Frakk­lands og taka völdin þar, en þingmenn ákváðu að kalla de Gaulle til starfa, sem hann og þáði.

Hann fékk sex mánuði til að setja saman nýja stjórnar­skrá, en í henni full­búinni var búið að venda um öxl frá fyrra skipulagi og forsetinn orðinn höfuð framkvæmda­valdsins. Kom fáum á óvart að de Gaulle skildi ná kjöri sem fyrsti forseti fimmta lýðveldisins.

Lausn á Alsírsdeilunni

Eitt af fyrstu embættis­verkum de Gaulles var að heimsækja Alsír og kynna sér aðstæður þar og lét frá sér hin fleygu orð: „Je vous ai compris“ – „Ég skil ykkur.“

Vanda­málið var að þeir sem komu að stríðinu kusu allir að líta svo á að forsetinn hafi verið að lýsa yfir stuðningi við sinn málstað.

De Gaulle tók svo af skarið og beitti þrýstingi til að láta forsvars­menn uppreisnarinnar í maí stíga niður og markaði þá stefnu að nútíma­væða alsírskan efnahag og binda enda á stríðið. Því náði hann fram með því að bjóða Alsíringum sjálfs­ákvörðunar­rétt, ráðstöfun sem fór gríðar­illa í svartfætlinga, eins og gefur að skilja, en almenningur í Frakk­landi samþykkti í þjóðar­atkvæða­greiðslu árið 1961.

Gengið var frá friðar­samningum milli Frakk­lands og Þjóð­frelsis­hreyfingarinnar í fram­haldinu, og árið eftir fékk Alsír fullt sjálf­stæði. Það leiddi til fordæma­lausra búferla­flutninga milli landanna þar sem um 900.000 svartfætlingar fluttu frá Alsír til Frakk­lands á einungis nokkrum mánuðum. Alsírs­stríðið hafði verið afar blóðugt og kostað 300.000 mannslíf.

Aðferðir de Gaulles við að leysa deiluna voru síður en svo óumdeildar sem sýndi sig best í því að oft var reynt að ráða hann af dögum.

Sterkur, en umdeildur leiðtogi

Hann reyndist hins vegar ófeigur um sinn og óx í embætti, þar sem hann lagði mikið upp úr sterkri stöðu Frakk­lands á alþjóða­vettvangi, meðal annars með því að standa fyrir því að Frakkland kom sér upp kjarna­vopnum árið 1960 og standa gegn nánari samruna ríkjanna sem stóðu að hinu nýstofnaða Efnahags­bandalagi Evrópu, síðar ESB. Þá stóð hann gegn aðild Bretlands að EBE þar sem hann taldi Breta vera leppa Banda­ríkjanna til frekari áhrifa í Evrópu og beitti meðal annars neitunar­valdi í tvígang til að koma í veg fyrir aðild Breta, árið 1963 og 1967. Þeir fengu loks aðild árið 1973, eftir að de Gaulle var farinn frá völdum og fallinn frá.

Þrátt fyrir að vera umdeildur utan landsteina var fall de Gaulles fyrst og fremst vegna umbrota innanlands. Ungt fólk í hinum vestræna heimi hafði verið að rísa upp gegn ríkjandi þjóð­félags­skipan og Frakkland var engin undan­tekning.

Í maí árið 1968, áratug eftir að hers­höfðinginn hafði komið eins og stormsveipur aftur til valda var orðið vart við þunga undiröldu reiði ungs fólks sem hafði fengið nóg af óbreyttu ástandi. Mótmæla­göngur og verkföll skóku samfélagið svo hrikti í stoðum þess. Bardagar geisuðu á götum Parísar á tímabili og allt virtist stefna í allsherjar upplausn.

Forsetinn brást við með því að leysa upp þingið og boða til kosninga, sem fóru frið­samlega fram og slökktu mótmæla­bálin, en de Gaulle náði þó aldrei fyrri stöðu og þegar tillögur hans að breyttri stjórn­skipan voru felldar í þjóðar­atkvæða­greiðslu árið eftir, sagði hann af sér og sagði skilið við stjórn­málin.

De Gaulle lést árið 1970, 79 ára að aldri, en skildi eftir sig djúp spor í frönskum stjórn­málum og samfélaginu almennt, sem og á alþjóða­vettvangi.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár