Möguleikanum á hryðjuverki ekki ýtt útaf borðinu - Titringur í Rússlandi

Mögu­leikanum á því að hryðjuverka­samtökin Íslamska ríkið hafi grandað flugvél í Egypta­landi á laugar­daginn með 224 farþegum innanborðs, hefur ekki verið ýtt útaf borðinu. Hann þykir ólíklegur, sökum þess í hvaða hæð vélin var þegar hún missti hæð, en ekkert er þó útilokað.

Enginn af þeim 224 sem var um borð í flugvél rússneska flug­félagsins Kogalymavia, í flugi númer KGL9268, komst lífs af þegar flugvélin fórst í Egypta­landi, en hún var á leið frá ferðamanna­staðnum Sharm el-Sheikh við Rauða­hafið til St. Péturs­borgar í Rússlandi. Hún fórst um tuttugu og tveimur mínútum eftir flugtak, og segja talsmenn Kogalymavia að allt bendi til þess að vélin hafi ekki farist vegna tækni­bilunar, heldur frekar skyndi­legs höggs eða annarra ytri áhrifa. Yfirvöld í Rússlandi hafa ekkert viljað segja um málið, en segja of snemmt að segja til um hvað gerðist, þar sem málið sé í rannsókn, að sögn BBC.

Eftir að vélin fórst lýstu hryðjuverka­samtök, sem starfaða hafa undir verndar­væng Íslamska ríkisins, yfir ábyrgð á því að vélin fórst. Sú yfir­lýsing hefur hins vegar ekki verið metin trúverðug, hvorki af yfirvöld í Egypta­landi né Rússlandi. Mikill titringur er sagður í Rússlandi vegna málsins, og eru forsvars­menn Kogalymavia flug­félagsins sagðir undir mikilli pressu vegna málsins.

Vladímir Pútín, forseti Rússlands, hefur lýst yfir þjóðar­sorg í Rússlandi og fyrir­skipaði strax sjálf­stæða rannsókn á orsökum þess að vélin fórst. Nær allir um borð voru Rússar, aðallega ferðamenn. Þrír einstaklingar frá Úkraínu voru um borð, af þeim 217 farþegum sem voru í vélinni. Áhöfn vélarinnar taldi sjö talsins.

Samkvæmt fréttum breska ríkis­útvarpsins BBC voru 138 konur í vélinu og sautján börn á aldrinum tveggja til sautján ára. Aðstæður á vettvangi slyssins voru sagðar skelfilegar þegar björgunar­menn komu að.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár