Vegabréf tekin af breskum ungmennum vegna ISIS samtakanna

Breskur dómstóll hefur úrskurðað að vegabréf tveggja stúlkna frá Austur-Lundúnum verði haldlögð, til að koma í veg fyrir að þær ferðist til Sýrlands til að ganga til liðs við hryðjuverka­stam­tökin ISIS, sem kenna sig við íslamska ríkið. Frétta­vefurinn Quartz greinir frá málinu.

Foreldrar stúlknanna leituðu með málið fyrir dómstóla, en þeir höfðu þungar áhyggjur af því að stúlkurnar myndu ferðast til Sýrlands í þessum tilgangi, vegna áhuga þeirra á að taka þátt í stríði ISIS.

Í síðasta mánuði tókst þremur ungum stúlkum frá Austur-Lundúnum að ferðast til Istanbul í Tyrklandi, en talið er að þær hafi gengið til liðs við ISIS-samtökin í Sýrlandi. Samkvæmt fjöl­miðlum notuðu hryðjuverka­samtökin samfélags­miðilinn Twitter til að ná til stúlknanna.

Bresk yfirvöld hafa vaxandi áhyggjur af því að róttæk íslömsk viðhorf séu að skjóta rótum á meðal þarlendra ungmenna. Til að mynda er hinn alræmdi „Jihadi John,“ sem hefur tekið fjölmarga gísla hrotta­lega af lífi fyrir framan myndbands­upptöku­vélar ISIS, breti að nafni Mohammed Emwaz frá Vestur-Lundúnum.

Samkvæmt bresku leyni­þjónustunni er talið að þúsundir Breta taki nú þátt í stríði ISIS í Írak og Sýrlandi, og áhugi á meðal breskra ungmenna að ganga til liðs við samtökin fer vaxandi, og þá sérstak­lega á meðal ungra stúlkna. Þá standa sömuleiðis frönsk stjórn­völd í ströngu að koma í veg fyrir ungar stúlkur fari úr landi til að ganga í hjónaband með ISIS-liðum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár