Marshall-aðstoð ríkisstjórnarinnar orðin ótímabundin

Róbert Marshall hefur verið ráð­inn ótíma­bundið í stöðu upp­lýs­inga­full­trúa rík­is­stjórn­ar­innar, en áður hafði hann verið ráð­inn tíma­bundið í stöð­una til þriggja mán­aða.

Róbert Marshall hefur verið ráð­inn ótíma­bundið í stöðu upp­lýs­inga­full­trúa rík­is­stjórn­ar­innar, en þetta segir Róbert sjálfur í svari við fyr­ir­spurn Kjarnans. Katrín Jak­obs­dóttir for­sæt­is­ráð­herra ræddi um áfram­hald­andi ráðn­ingu hans á rík­is­stjórn­ar­fundi í morgun.

Í þessa stöðu er skipað póli­tískt og því þarf ekki að aug­lýsa hana, frekar en þegar ráð­herrar velja sér aðstoð­ar­menn. Rík­is­stjórnin til­kynnti um tíma­bundna ráðn­ingu Róberts í mars síð­ast­liðnum, en hún tók gildi 1. apríl.

Ró­bert á sjálfur nokkurn feril í póli­tík, þó fyrir aðra flokka en þá sem nú sitja í rík­is­stjórn. Hann er fyrr­ver­andi alþing­is­maður fyrir bæði Bjarta Framtíð og Sam­fylk­ing­una og sat sömu­leiðis utan flokka um skamma hríð eftir að hafa sagt sig úr þing­flokki Sam­fylk­ing­ar­innar árið 2012, þegar hann var búinn að ákveða að bjóða fram undir merkjum Bjartrar Fram­tíðar í kosn­ing­unum 2013. 

Hann var þing­flokks­for­maður þess flokks frá 2013-2015 og sat óslitið á þingi frá 2009 til 2016. Hann sagði sig form­lega úr Bjartri Framtíð í upp­hafi árs 2017.

Und­an­farin ár hefur hann starfað við fjalla­leið­sögn, þjálfun og úti­vist, en áður starf­aði hann við fjöl­miðla og var einnig aðstoð­ar­maður sam­göngu­ráð­herra áður en hann sett­ist fyrst á þing árið 2009.

Róbert er fyrr­ver­andi for­maður Blaða­manna­fé­lags Íslands og var um tíma for­stöðu­maður frétta­sviðs 365. Hann stund­aði fisk­vinnslu, neta­gerð og sjó­mennsku í Vest­manna­eyjum og er stúd­ent frá fram­halds­skól­anum þar.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Hætta á að lánin hækki þó íbúða­verð lækki

Már Wolfgang Mixa hag­fræði­pró­fessor segir að stór hluti eigin fjár íbúða­eig­enda gæti þurrkast út á kom­andi mán­uðum. Verð­tryggðar fast­eigna­skuldir hækki í verð­bólgu­tíð sam­hliða því að íbúða­verð gæti lækkað. Hann leggur til að verð­tryggð hús­næð­is­lán fylgi íbúða­verði en ekki vísi­tölu neyslu­verðs. Þá myndu bank­arnir bera hluta áhætt­unnar.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár