Halldór Ásgrímsson þungt haldinn á Landspítalanum

Fyrrum forsætis­ráðherra er sagður hafa fengið hjarta­áfall í sumar­bústað sínum.

Halldór Ásgrímsson, fyrr­verandi forsætis­ráðherra og formaður Framsóknar­flokksins, er nú haldið sofandi á Land­spítalann. Anna Sigrún Baldurs­dóttir, aðstoðar­manns forstjóra Land­spítalans,  segir í samtali við Stundina að Halldór hafi verið færður á Landspítalan á laugardag.

Að hennar sögn var hann þungt haldinn við komu á spítalann. Samkvæmt frétt á dv.is fékk hann hjarta­áfall síðastliðinn föstudag og var hann þá staddur í sumar­bústað sínum við Álftavatn. Samkvæmt sömu frétt var hann fluttur með sjúkrabíl til Reykja­víkur. Að sögn Önnu fékk Halldór hjarta­áfall aðfara­nótt laugar­dags. 

„Það sem við getum sagt á þessum tíma­punkti er að Halldór Ásgrímsson liggur þungt haldinn á gjör­gæslunni við Hringbraut,“ segir Anna Sigrún. 

Halldór er 67 ára gamall og starfaði hann sem framkvæmda­stjóri Norrænu ráðherra­nefndarinnar til ársins 2013.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Athugasemdir eru ekki leyfðar við þessa grein.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár