87% fjármagns til þriggja sprotafyrirtækja

Plain Vanilla, CCP Games og Verne Global fengu um 87 prósent af fjármagni, sem rann til íslenskra sprota­fyrirtækja, sem skoðað var í nýrri skýrslu um sprota­umhverfi í Evrópu. Tólf fyrirtæki skiptu með sér 13 prósentum. Skýrslan var unnin á vegum Evrópu­ráðsins og Startup Europe sem miðar að því að styðja sprota­fyrirtæki víðsvegar um Evrópu til frekari vaxtar. Skýrslan var unnin af Mind the Bridge – samtökum í þágu sprota­starfs sem sérhæfa sig í að tengja tækni­sprota og stór­fyrirtæki. Norður­skautið, frétta­síða um nýsköpun á Íslandi, aðstoðaði við gagna­öflunina.

Íslensk fyrirtæki hafa safnað yfir 26 milljörðum króna

Á síðastliðnum fimm árum hafa fimmtán fyrirtæki á Íslandi náð að verða vaxta­fyrirtæki (e. scaleup), það er fyrirtæki í vexti sem búin eru að ná lágmarks fjár­mögnun upp á milljón dollara. Íslensk fyrirtæki hafa samtals safnað 200 milljónum dollara í fjár­mögnun eða rúmlega 26 milljörðum króna.

Skýrslunni er ætlað að varpa ljósi á stöðu framtaks­fjár­festinga á Íslandi og bera saman við önnur lönd í Evrópu. Þar kemur í ljós að Ísland, ásamt hinum Norður­löndunum, stendur framarlega þegar kemur að fjölda fyrir­tækja sem fengið hafa stærri framtaks­fjár­festingar. 

Auðveldara fyrir stóru fyrirtækin að afla fjár

Guðbjörg Rist Jóns­dóttir, forsvars­maður rann­sóknarinnar hjá Norður­skauti, segir að það beri að hafa í huga að skýrslan nái einungis til upplýsinga­fyrirtækja og því vanti til dæmis ORF líftækni sem hefur verið að fá háar upphæðir.

Hún segir að það hafi verið talað um það að ef fyrir­tækjum hafi tekist að afla fjár á annað borð þá sé auðveldara að bæta ofan á. Hugsanlega vanti milli­fjár­festingar en það séu tiltölu­lega fá fyrirtæki sem ná að útvega sér fjármagn. Hún segir að dreifingin sé betri í öðrum löndum og að ekki sé eins afgerandi munur annars staðar. Hún bætir við að hugsanlega sé hægt að skýra þennan mun með smæð landsins.

Einnig ber að taka það fram að skýrslan fjallar einungis um fyrirtæki sem náð hafa að lágmarki milljón dollurum, eða um 125 milljónum króna, í fjár­mögnun frá framtaks­fjárfestum.

Framtaksfjármagn hlutfallslega hæst á Íslandi

Í skýrslunni kemur fram að það eru fleiri fyrirtæki á Íslandi sem náð hafa lágmarks­fjármögnun til að kallast vaxta­fyrirtæki, miðað við höfðatölu en annars staðar í Evrópu. Hlutfall framtaks­fjármagns af lands­framleiðslu á Íslandi er það hæsta á Norður­löndunum, samkvæmt útreikningum MtB.

Kjarninn hefur fjallað um fjár­festingar í þessum þremur stærstu fyrir­tækjum Plain Vanilla, CCP Games og Verne Global.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár