Íslenska krónan krufin í nýrri heimildarmynd

Ný íslensk heim­ild­ar­mynd, Íslenska krónan, verður tekin til sýn­inga í Bíó Paradís frá og með næsta sunnu­degi. Myndin fjallar um krón­una, sögu hennar, stöðu og fram­tíð. Leik­stjóri mynd­ar­innar er Garðar Stef­áns­son og fram­leið­andi hennar Atli Bollason. Þeir skrif­uðu hand­rit mynd­ar­innar saman.

Myndin hefur verið í vinnslu und­an­farin sjö ár, og hefur því verið gerð á miklum umbrota­tímum í íslenskri hag­sögu, eins og höf­und­arnir orða það. Vinnslan hófst vorið 2008, og átti þá að fjalla um kosti og galla þess að taka upp evru á Íslandi. Þegar aðstæður á Íslandi breytt­ust svo um munar breytt­ist umfjöll­un­ar­efnið. Þeir Garðar og Atli end­ur­skrif­uðu mynd­ina með það fyrir augum að fræða almenn­ing um pen­inga­mál og hug­tök sem þá voru komin í hámæli - eins og verð­bólgu, verð­trygg­ingu, gjald­eyri og vexti.

Lögð var áhersla á að myndin væri auð­skilin og fræð­andi án þess að fórna fjöl­breytni í skoð­unum eða gagn­rýnni hugsun. Fjöl­margir við­mæl­endur eru í mynd­inni, til dæmis Már Guð­munds­son seðla­banka­stjóri, Heiðar Már Guð­jóns­son fjár­festir, Vigdís Hauks­dóttir þing­kona, Eyja Margrét Brynjars­dóttir heim­spek­ingur og Guðni Th. Jóhann­es­son sagn­fræð­ingur.

Tvær stiklur hafa verið birtar úr mynd­inni og þær má sjá hér að neðan.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

4
Innlent

Hætta á að lánin hækki þó íbúða­verð lækki

Már Wolfgang Mixa hag­fræði­pró­fessor segir að stór hluti eigin fjár íbúða­eig­enda gæti þurrkast út á kom­andi mán­uðum. Verð­tryggðar fast­eigna­skuldir hækki í verð­bólgu­tíð sam­hliða því að íbúða­verð gæti lækkað. Hann leggur til að verð­tryggð hús­næð­is­lán fylgi íbúða­verði en ekki vísi­tölu neyslu­verðs. Þá myndu bank­arnir bera hluta áhætt­unnar.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár