Óvæntar gleðistundir: Þegar ég sá Debbie Harrie

Debbie Harry úr Blondie kom til Íslands á dögunum og var heiðurs­gestur RIFF – alþjóð­legu kvikmynda­hátíðarinnar í Reykjavík. Debbie Harrie, sem stundum hefur verið líkt við Marilyn Monroe, sögð vera pönk­útgáfan af henni, spjallaði við gesti í Háskóla­bíói 2. október síðastliðinn en miði á viðburðinn flögraði eins og litríkt fiðrildi til Margrétar Marteins­dóttur klukku­tíma áður en gestum var hleypt inn í stóra salinn í bíóinu.

Margar af eftir­minnilegustu stundum lífs míns hafa, hingað til, skotið óvænt upp kollinum og tengjast tónleikum sem ég hef ekki náð að kaupa miða á en hefur áskotnast aðgangur að dýrðinni með stuttum fyrirvara. Þetta hafa verið miðar sem hafa flögrað um án eiganda og ratað til mín.

 Það gerðist í október árið 2011 þegar ég sá Sinead O'Connor spila í Fríkirkjunni. Það gerðist í nóvember 2015 þegar John Grant spilaði í Hörpu I wanted to change the world But I could not even change my underwear. Líka þegar ég sá Patti Smith á Kexinu árið 2011. Þá var band skylmingar­þrælsins nýsjálenska, Russell Crowe, að spila og Patti Smith var leynigestur. Hún birtist á sviðinu þegar Crowe og félagar voru búnir að spila nokkur lög og söng Because the night.

Ég stóð svo nálægt Patti Smith þetta kvöld að ég hefði getað fléttað á henni hárið …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár