Hofgarðar ehf., félag í eigu Helga Magnússonar, hagnaðist um 3,2 milljarða króna á árinu 2021. Meginskýring hagnaðins er sala á sex prósenta hlut Hofgarða í Bláa lóninu til fjárfestingafélagsins Stoða í fyrrahaust. Frá þessu er greint í Fréttablaðinu í dag en Helgi er langstærsti eigandi útgáfufélags þess, meðal annars í gegnum Hofgarða.
Þegar Stoðir keyptu hlut Hofgarða í Bláa lóninu í september var kaupverðið sagt trúnaðarmál. Eigið fé Hofgarða, sem fjárfestir í skráðum og óskráðum verðbréfum, var 2,9 milljarðar króna í lok árs 2020 en er nú yfir sex milljarðar króna samkvæmt frétt Fréttablaðsins.
Bláa lónið er óskráð félag en eign Hofgarða í slíkum var metin á rúmlega einn milljarð króna í lok árs 2020. Þekktar óskráðar eignir Hofgarða á þeim tíma voru helst tvær, sex prósent hluturinn í Bláa lóninu og stór hlutur í Torgi, útgáfufélagi Fréttablaðsins, DV, Hringbrautar og tengdra miðla. Því má ljóst vera að hlutur Hofgarða í Bláa lóninu hefur verið seldur langt yfir bókfærðu virði.
Hofgarðar hafa ekki birt ársreikning sinn vegna ársins 2021 opinberlega. Einu upplýsingarnar sem liggja fyrir um gengi félagsins á því ári eru þær sem birtar voru í Fréttablaðinu í dag.
Setti 300 milljónir í rekstur fjölmiðla í byrjun árs
Hofgarðar keyptu nýtt hlutafé í Torgi fyrir 300 milljónir króna í byrjun árs. Skjölum vegna hlutafjáraukningarinnar hefur ekki verið skilað til Skattsins en samkvæmt því sem fram kemur á heimasíðu fjölmiðlanefndar eiga Hofgarðar, sem eru alfarið í eigu Helga Magnússonar, nú 60 prósent í fjölmiðlafyrirtækinu. Það sem upp á vantar er í eigu félagsins HFB-77 ehf., en annað félag Helga, Varðberg ehf, er eigandi 82 prósent hlutafjár í því félagi. Hann á því beint 92,8 prósent hlut í Torgi. Eigið fé Varðbergs var 379 milljónir króna í lok árs 2020 og því má ætla að Helgi eigi eignir umfram skuldir sem slagi hátt í sjö milljarða króna.
Aðrir eigendur þess eru Sigurður Arngrímsson, fyrrverandi aðaleigandi Hringbrautar og viðskiptafélagi Helga til margra ára, Jón G. Þórisson, fyrrverandi ritstjóri Fréttablaðsins, og Guðmundur Örn Jóhannsson, fyrrverandi sjónvarpsstjóri Hringbrautar og nú framkvæmdastjóri sölu, markaðsmála og dagskrárgerðar hjá Torgi. Hlutur annarra en Helga er hverfandi.
Heildarhlutafé Torgs ehf. nemur nú 750 milljónum króna, sem allt hefur verið keypt á genginu tveimur fyrir samtals 1.500 milljónir króna.
Hópurinn keypti Torg í tveimur skrefum á árinu 2019. Kaupverðið var trúnaðarmál en í ársreikningi HFB-77 ehf. fyrir árið 2019 má sjá að það félag keypti hlutabréf fyrir 592,5 milljónir króna á því ári. Torg var og er eina þekkta eign félagsins. Hlutafé í Torgi var svo aukið um 600 milljónir króna í lok árs 2020. Með nýju hlutafjáraukningunni er ljóst að settir hafa verið 1,5 milljarðar króna í kaup á Torgi og hlutafjáraukningar frá því að Helgi og samstarfsmenn hans komu að rekstrinum fyrir tveimur og hálfu ári.
Kjarninn greindi frá því í nóvember í fyrra að rekstrartap Torgs, útgáfufélags Fréttablaðsins, Hringbrautar, DV og tengdra miðla, var 688,7 milljónir króna á árinu 2020. Árið áður var rekstrartap félagsins 197,3 milljónir króna og því nam sameiginlegt rekstrartap þess á tveimur árum 886 milljónum króna.
Þegar vaxtagjöldum vegna lána sem Torg hefur þurft að borga af og gengismun er bætt við kemur í ljós að tap af reglulegri starfsemi fyrir skatta var um 750 milljónir króna á síðasta ári og rúmlega einn milljarður króna á tveimur árum.
Veistu meira? Láttu okkur vita
Það tókst ekki að sækja formið. Reyndu aftur eftir augnablik.















































Athugasemdir