Stýrivextir hækkaðir í 1,5 prósent

Seðla­bankinn hefur ákveðið að hækka vexti sína um 0,25 prósentu­stig. Peninga­stefnu­nefnd bankans segir það vera áhyggju­efni að verðbólgu­væntingar virðast hafa tekið að hækka á ný.

Peninga­stefnu­nefnd Seðla­banka Íslands hefur ákveðið að hækka vexti á lánum bankans um 0,25 prósentu­stig. Með því verða stýri­vextir bankans komnir upp í 1,5 prósent. Þetta kemur fram í tilkynningu nefndarinnarsem birt var á vef bankans í morgun.

Útlit fyrir kröftugan efnahagsbata

Samkvæmt tilkynningunni sýna bráðabirgða­tölur að hagvöxtur á fyrri hluta þessa árs hafi verið nokkuð minni en bankinn spáði í ágúst. Hins vegar séu vísbendingar um að efnahags­bati hafi verið kröftugur á nýliðnum ársfjórðungi og að hagvaxtar­horfur fyrir árið í heild hafi lítið breyst.

Verðbólga eykst enn

Nefndin nefnir einnig að verðbólga hafi haldið áfram að aukast, en hún mældist 4,4 prósent í september. Hröð hækkun húsnæðis­verðs útskýrir stóran hluta af verð­bólgunni, en samkvæmt yfir­lýsingu peninga­stefnu­nefndar hefur undir­liggjandi verðbólga haldið áfram að hjaðna. Áhrif tíma­bundinna framboðs­truflana, sem hafa hækkað kostnað við að framleiða og dreifa vörur um allan heim, gætu aftur á móti varað lengur en áður var talið að mati nefndarinnar.

„Þótt undir­liggjandi verðbólga fari minnkandi er það áhyggju­efni að verðbólgu­væntingar virðast hafa tekið að hækka á ný,“ segir í yfir­lýsingunni. „Of snemmt er þó að segja til um hvort kjölfesta þeirra við verðbólgu­markmið sé að veikjast.“ Nefndin bætir einnig við a hún muni beita þeim tækjum sem hún hefur yfir að ráða til að tryggja að verðbólga hjaðni aftur í markmið „innan ásættanlegs tíma“.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár