Tígrisdýr í New York greinist með COVID-19: Mælt með varúð í umgengni við dýr

Greining á tígris­dýri í New York vekur upp spurn­ingar um smit kór­ónu­veirunnar úr mönnum í dýr.

Tígrisdýr í Bronx
Tígris­dýr í Bronx Myndin er af tígris­dýri í dýra­garð­inum í Bronx í New York, en ekki er ljóst hvort um er að ræða sama tígur og greind­ist með COVID-19. Mynd: Shutterstock

Tígris­dýr í dýra­garð­inum í Brooklyn í New York-borg hefur greinst með kór­óna­veiruna. Þetta er fyrsta dýrið í Banda­ríkj­unum til að grein­ast með veiruna. Tígris­dýrið er fjög­urra ára gam­alt, að nafni Nadia. Þetta er fyrsta smitið sem grein­ist í dýri í Banda­ríkj­unum.

Sýnið var tekið eftir að þrjú ljón og þrjú önnur tígris­dýr í garð­inum fóru að sýna ein­kenni um önd­un­ar­sýk­ingu frá og með 27. mars síð­ast­liðnum. 

Talið er að smitið hafi borist frá ein­kenna­lausum dýra­garðs­starfs­manni. Yfir 330 þús­und manns hafa greinst með kór­óna­veiruna í Banda­ríkj­unum og er ein helsta mið­stöð far­ald­urs­ins í New York-borg. Hátt í 10 þús­und manns eru látin í land­inu.

Smitið var stað­fest í yfir­lýs­ingu frá dýra­eft­ir­liti land­bún­að­ar­ráðu­neytis Banda­ríkj­anna fyrr í kvöld.

Þrátt fyrir grein­ing­una er til­fellið ekki sagt vera vís­bend­ing um að dýr geti smitað menn. Þó er mælt með varúð.

„Þú ættir að tak­marka snert­ingu við gælu­dýr og önnur dýr meðan þú ert með smit af COVID-19, rétt eins og þú gerir gagn­vart fólki. Jafnvel þótt það hafi ekki verið til­kynn­ingar um veik gælu­dýr vegna COVID-19 í Banda­ríkj­unum, er enn mælt með því að fólk sem er smitað af COVID-19 tak­marki snert­ingu við dýr þar til meiri upp­lýs­inga hefur verið aflað um vírus­inn,“ segir í leið­bein­ingum land­bún­að­ar­ráðu­neyt­is­ins í Banda­ríkj­unum.

Um fimm þús­und tígris­dýr eru í Banda­ríkj­unum, ýmist í einka­eigu eða í eigu dýra­garða. Aðeins eru um 3.200 tígris­dýr eftir í nátt­úru­legum heim­kynnum sínum í heim­inum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

2
Viðtal

Ef við kveðjum tungu­málið, þá týnum við vídd draumanna

Í sögu íslenskra bók­mennta í þús­und ár er lögð áhersla á raddir inn­flytj­enda, þá sem nú. Höf­und­ur­inn, Halldór Guð­munds­son, öðl­að­ist tveggja heima sýn ungur í Þýska­landi. Að læra lat­ínu frá 10 ára aldri lam­inn af kenn­ara sem skildi hann ekki, í sárum eftir heims­styrj­öld. Seinna spurði hann sig: „Hver má tala?" Í dag segir hann: „Íslend­inga­sögur dags­ins í dag eru að hluta til sagðar af fólki sem hingað hefur flutt."

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

5
Innlent

Hætta á að lánin hækki þó íbúða­verð lækki

Már Wolfgang Mixa hag­fræði­pró­fessor segir að stór hluti eigin fjár íbúða­eig­enda gæti þurrkast út á kom­andi mán­uðum. Verð­tryggðar fast­eigna­skuldir hækki í verð­bólgu­tíð sam­hliða því að íbúða­verð gæti lækkað. Hann leggur til að verð­tryggð hús­næð­is­lán fylgi íbúða­verði en ekki vísi­tölu neyslu­verðs. Þá myndu bank­arnir bera hluta áhætt­unnar.

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár