Vill stytta kynningarferli áformaðra friðlýsinga

Umhverfis- og auð­linda­ráð­herra ætlar að stytta þann tíma sem þarf til að kynna áform­aðar frið­lýs­ingar og flytja heim­ild ráð­herra til að veita und­an­þágur frá ákvæðum frið­lýs­inga til Umhverf­is­stofn­unar.

Guðmundur Ingi Guðbrandsson, umhverfis- og auðlindaráðherra.
Guð­mundur Ingi Guð­brands­son, umhverfis- og auð­linda­ráð­herra. Mynd: Bára Huld Beck

Guð­mundur Ingi Guð­brands­son umhverfis- og auð­linda­ráð­herra, áformar að leggja fram frum­varp til laga um breyt­ingu á lögum um nátt­úru­vernd sem fela í sér að kynn­ing­ar­ferli áform­aðra frið­lýs­inga verði stytt. Jafn­framt er áformað að tími sá sem ætl­aður er til að kynna drög að frið­lýs­ing­ar­skil­málum verði styttur frá því sem hann er í dag.

Guð­mundur Ingi kynnti þessi áform í sam­ráðs­gátt stjórn­valda í síð­ustu viku og umsagn­ar­frestur er til 16. ágúst.

Í umfjöllun um áformin þar segir að þar sem nokkur reynsla sé komin á fram­kvæmd frið­lýs­inga í sam­ræmi við lög um nátt­úru­vernd frá árinu 2013, sé ætl­unin að leggja til að kynn­ing­ar­ferli áform­aðra frið­lýs­inga, sem ekki eru á nátt­úru­minja­skrá, verði stytt.

Þá er áformað að heim­ild ráð­herra til að veita und­an­þágur frá ákvæðum frið­lýs­inga verði fluttar til Umhverf­is­stofn­unar. Í umfjöll­un­inni i sam­ráðs­gátt­inni segir að með því að færa und­an­þágu­heim­ildir frá ákvæðum frið­lýs­ingar til Umhverf­is­stofn­unar skap­ist tæki­færi til að fá ákvörðun end­ur­skoð­aða á stjórn­sýslu­stigi.

Einnig er áformað að ítrekuð verði sú skylda að kort­leggja óbyggð víð­erni og að bann við losun úrgangs verði rýmkað.

Ein umsögn hefur borist um áformin, frá Reykja­vík­ur­borg. Þar er tekið undir að máls­með­ferð­ar­tími frið­lýs­inga sé óþarf­lega langur, að til bóta sé að færa heim­ildir til und­an­þágu á ákvæðum frið­lýs­ingar til Umhverf­is­stofn­unar, að nauð­syn­legt sé að kort­leggja óbyggð víð­erni til að átta sig betur á umfangi þeirra og að sjálf­sagt sé að rýmka bann við losun úrgangs þannig að það nái yfir nátt­úr­una almennt en ekki ein­ungis um áning­ar­staði og tjald­stæði.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Hætta á að lánin hækki þó íbúða­verð lækki

Már Wolfgang Mixa hag­fræði­pró­fessor segir að stór hluti eigin fjár íbúða­eig­enda gæti þurrkast út á kom­andi mán­uðum. Verð­tryggðar fast­eigna­skuldir hækki í verð­bólgu­tíð sam­hliða því að íbúða­verð gæti lækkað. Hann leggur til að verð­tryggð hús­næð­is­lán fylgi íbúða­verði en ekki vísi­tölu neyslu­verðs. Þá myndu bank­arnir bera hluta áhætt­unnar.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár