Trump segist ekki bundinn af friði

Bandaríkja­forseti segist ekki bundinn af friði þegar kemur að Grænlandi, þar sem hann hafi ekki fengið friðar­verðlaun Nóbels. „Ég hef gert meira fyrir NATO en nokkur annar frá stofnun þess og nú ætti NATO að gera eitthvað fyrir Banda­ríkin,“ skrifaði Donald Trump í skila­boðum til Jonas Gahr Støre, forsætis­ráðherra Noregs.

Donald Trump, forseti Banda­ríkjanna, segist ekki finna sig knúinn til að hugsa eingöngu um frið, þar sem hann hafi ekki fengið friðar­verðlaun Nóbels. „heldur get ég nú hugsað um það sem er gott og rétt fyrir Bandaríki Norður-Ameríku“. 

ÚtskýrtFor­sæt­is­ráð­herr­ann Støre seg­ist hafa margút­skýrt fyrir Trump að það séu ekki stjórn­völd hans sem veiti Nóbels­verð­launin.

Þetta skrifaði hann í skila­boðum til Jonas Gahr Støre, forsætis­ráðherra Noregs. Støre stað­festir við norska fjölmiðla að hann hafi fengið skila­boðin frá Trump á sunnudags­kvöld. Þau hafi verið svar við skila­boðum sem hann sendi Bandaríkja­forseta fyrr um daginn.

Støre hafði í skila­boðum sínum borið fram beiðni sína og Alexander Stubb, forseta Finnlands, um símafund með Trump vegna tolla sem hann hefur lagt á ríkin tvö, og fleiri, til að þrýsta á um að fá Grænland. 

Í samtali við NRK segist Støre líka …

Kjósa
1
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Grænlandsmálið

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár