Gjaldskrárhækkun Strætó dugir ekki og tímabært að endurskoða rekstrarmódelið

Hundruð milljóna króna gat er í rekstri Strætó og hækkun fargjalda mun ekki fylla upp í það. Jóhannes Rúnarsson, framkvæmda­stjóri Strætó, segir viðræður við ríkið um aukna aðkomu standa fyrir dyrum.

Gengur ekki upp
Gengur ekki upp Rekst­ur­inn gengur ekki upp eins og staðan er og hækkun far­gjalda mun ekki breyta því, að því er Jóhannes Rún­ars­son, fram­kvæmda­stjóri Strætó, segir. Mynd: Strætó bs.

Hækkun gjaldskrár Strætó um 12,5 prósent dugir ekki til að gera reksturinn sjálf­bæran. „Langt því frá,“ segir Jóhannes Rúnarsson, framkvæmda­stjóri Strætó, sem segir hækkunina eina af nokkrum aðgerðum sem ráðist hefur verið í vegna rekstrar­vandans. Hún sé þó vissulega brött í prósentum talið. „En í krónutölu nær hún hún kannski einn þriðja upp í hækkun á olíuverði á árinu, á lítranum.“

Jóhannes segir til viðbótar við gjaldskrár­hækkun séu viðræður í gangi við eigendur Strætó um að leggja fram meira fé í rekstrar­stuðning, hagræðingar­aðgerðir sem hafi átt að vera tíma­bundnar hafi verið fram­lengdar út árið og að samtal sé hafi við ríkið um aukna aðkomu þess að rekstrinum.

Umboðsmaður hefur krafist svara

Nýja gjaldskráin tekur gildi 1. október næst­komandi og mun stakt fargjald full­orðinna hækka úr 490 krónum í 550 krónur. Ungmenni, sem þó var lofað frítt í Strætó í samstarfs­sáttmála meirihlutans í borginni, munu greiða 275 krónur …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár