„Framburður fjölskyldunnar var metinn trúverðugur en það virðist ekki nægja“

Fimm manna fjöl­skylda leitar skjóls á Íslandi eftir að hafa orðið fyrir aðkasti og sætt mismunun í Albaníu. Útlendinga­stofnun trúir fólkinu en synjar því samt um hæli. Undir­skrifta­söfnun er hafin.

Höfundaréttur: Vísir – Gunnar V. Andrésson
Höf­unda­réttur: Vísir – Gunnar V. Andr­és­son Mynd: Vísir – Gunnar V. Andrésson

„Þessi synjun kom mér ekki beinlínis á óvart en þetta eru mikil vonbrigði. Sem betur fer er þetta ekki síðasti séns þessarar fjöl­skyldu. Niður­staða Útlendinga­stofnunar hefur þegar verið kærð til kæru­nefndar útlendinga­mála.“

Þetta segir Kristjana Fenger, lögmaður albönsku fjöl­skyldunnar sem Útlendinga­stofnun synjaði um hæli á Íslandi í gær, í samtali við Stundina. Um er að ræða fimm manna fjöl­skyldu sem kom til Íslands í byrjun júní á flótta undan ofsóknum og mismunun í heima­landinu. Vísir greindi frá málinu í morgun.

Að sögn Kristjönu Fenger, lögmanns fjöl­skyldunnar, virðist almennt mat á aðstæðum í Albaníu hafa ráðið niður­stöðu Útlendinga­stofnunar. „Fram­burður fjöl­skyldunnar var metinn trúverðugur en það virðist ekki nægja,“ segir hún í samtali við Stundina. 

Illugi Jökulsson rithöfundur hefur hafið undir­skrifta­söfnun til stuðnings fjöl­skyldunni undir yfir­skriftinni „Leyfum Telati fjöl­skyldunni að setjast að á Íslandi“. 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár