Evrópusambandið stefnir að fríu Wifi-sambandi í öllum ríkjum

Evrópu­sambandið stefnir að því koma upp fríu Wifi-sambandi í öllum aðildar­ríkjum á næstu fjórum árum.

Jean-Claude Juncker, forseti framkvæmda­ráðs Evrópu­sambandsins, greindi frá því í ávarpi í Evrópu­þinginu í gær, að Evrópu­sambandið stefndi að því að byggja upp frítt Wifi-samband á öllum opinberum svæðum í aðildar­ríkjunum á næstu fjórum árum. Þá sagðist hann einnig vonast til þess að í það minnsta ein borg í sambandinu verði búinn að innleiða opið 5G samband fyrir um alla borg, fyrir árið 2020.

Með þessum aðgerðum er stefnt að því að styrkja lífskjör fólks og einnig renna stoðum undir sífellt stækkandi heim internetsins og samfélags­miðla. Evrópu­sambandið hefur þegar fjallað um nauðsyn þess að fólk hafi aðgang að góðu internet­sambandi. 

Evrópu­sambandið ætlar sér þó ekki að taka á sig allan kostnaðinn, heldur munu Evrópu­sambands­ríkin, og einstaka borgir og sveitar­félag innan þeirra, þurfa að borga hluta af kostnaðinum. Um 120 milljónir evra eru eyrna­merktar í verkefni, eða sem nemur um 17 milljörðum króna.

Í frétt breska ríkis­útvarpsins BBC er rætt við Mark Newman, greinanda hjá ConnectivityX, sem telur fjár­festingu vera alltof litla. Ef verkefnið á að ganga eftir þurfi það að vera miklu stærra í sniðum, og ítarleg áætlun með forgangs­röðun uppbyggingar þurfi að liggja fyrir.

Juncker sagði í ávarpi sínu að hin starfræna veröld væri orðin lífs­nauðsynleg í lífi fólks, að það væri metnaðarmál fyrir Evrópu­sambandið að tryggja fólki aðgang að góðu netsambandi.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár