Erfiðir tímar framundan á Grænlandi

Miklir erfið­leikar blasa við Grænlendingum en aðeins tveim dögum fyrir kjördag var upplýst að staða grænlenska lands­sjóðsins er mun verri en áður var vitað.

Siumut er áfram stærsti flokkurinn á grænlenska lands­þinginu eftir þing­kosningarnar síðastliðinn föstudag. Siumut fékk 34,3 prósent atkvæða og ellefu þingmenn, tapaði tíu prósentu­stigum frá kosningunum á síðasta ári. Inuit Atqatigiit flokkurinn fékk 33,2 prósent atkvæða og sömuleiðis ellefu þingmenn.

Þessi niður­staða þýðir að það kemur í hlut Kim Kielsen leiðtoga Siumut að reyna myndun nýrrar stjórnar. Sextán þingsæti þarf til að mynda meirihluta en þingmenn eru 31. Samstarf tveggja stærstu flokkanna er talið fremur ólíklegt og af þeim sökum eru smáflokkarnir þrír, sem samtals fengu 9 þingmenn, í lykil­stöðu. Kim Kielsen leiðtogi Siumut sagði, þegar úrslitin lágu fyrir að ný lands­stjórn yrði ekki mynduð í einum grænum, miklu skipti að flokkar á grænlenska þinginu næðu samkomu­lagi sem tryggði gæti framtíð lands og þjóðar, eins og hann komst að orði og það er ærið viðfangs­efni.

Kim Kielsen, leiðtogi Siumut, á kjörstað í nýafstöðnum þing­kosningum á Grænlandi.

Spilling og hneykslismál felldu stjórnina


Aleqa Hammond fyrr­ver­andi for­maður Siumut og leið­togi græn­lensku lands­stjórn­ar­innar boð­aði til kosn­ing­anna eftir að stjórn hennar missti meiri­huta sinn á þing­inu í byrjun októ­ber. Það gerð­ist í kjöl­far þess að upp komst að Aleqa Hammond hafði notað opin­bert fé í þágu fjöl­skyldu sinnar, meðal ann­ars til ferða­laga. Margir Græn­lend­ingar höfðu bundið miklr vonir við „drottn­ingu græn­lenskra stjórn­mála“ eins og hún var gjarna kölluð. En skjótt skip­ast veður í lofti og „drottn­ingin“ valt af stall­inum án þess að hafa komið miklu til leiðar á sinni stuttu valda­tíð.

Kim Kielsen, leiðtogi Siumut, á kjörstað í nýafstöðnum þingkosningum á Grænlandi.
Kim Kielsen, leið­togi Siumut, á kjör­stað í nýaf­stöðnum þing­kosn­ingum á Græn­landi.

Fyrir kosningarnar í mars í fyrra snérist kosninga­baráttan að miklu leyti um hvort leyfa ætti mikla vinnslu náttúru­auðlinda, málma, olíu, gulls og eðal­steina. Hagvöxtur hefur verið neikvæður undan­farin ár, atvinnu­leysi er mikið (9 – 10 prósent) og ferða­mönnum hefur fækkað talsvert. Hátt fiskverð hefur bjargað sjávar­útveginum en þar er framtíðin óviss. Miklar áskoranir blöstu því við ríkis­stjórn Alequ Hammond en á þeim skamma tíma sem stjórn hennar sat breyttist fátt.

Aleqa Hammond, þáverandi leiðtogi grænlensku lands­stjórnarinnar, í sjónvarps­viðtali hjá Sveini H. Guðmars­syni, frétta­manni á RÚV, í maímánuði síðastliðnum.

Kolsvört skýrsla tveimur dögum fyrir kosningar


Tveimur dögum fyrir kosn­ingar tók kosn­inga­bar­áttan nýja stefnu þegar græn­lenska efna­hags-og inn­an­rík­is­ráðu­neytið birti skýrslu um stöðu lands­sjóðs­ins en stjórn­ar­and­staðan hafði marg­sinnis kraf­ist þess að skýrslan yrði birt, áður en gengið yrði til kosn­inga. Óhætt er að segja að segja að þar blasi við dekkri mynd en flestum hafði til hugar komið, kolsvört er víst óhætt að segja.

Aleqa Hammond, þáverandi leiðtogi grænlensku landsstjórnarinnar, í sjónvarpsviðtali hjá Sveini H. Guðmarssyni, fréttamanni hjá RÚV í maímánuði síðastliðnum.
Aleqa Hammond, þáver­andi leið­togi græn­lensku lands­stjórn­ar­innar, í sjón­varps­við­tali hjá Sveini H. Guð­mars­syni, frétta­manni hjá RÚV í maí­mán­uði síð­ast­liðnum.

Í fjárlögum þessa árs var gert ráð fyrir 20,8 milljóna króna afgangi (432 milljörðum íslenskra króna) en samkvæmt skýrslunni verður hinsvegar halli uppá 282 milljónir króna (tæplega 5.9 milljarðar íslenskra króna). Grænlensku fjárlögin hljóða uppá 6.6. milljarða króna (137 milljarða íslenskra króna). Ekki er ofmælt að Grænlendingum hafi brugðið illilega við þessar fréttir en Vittus Qujaukitsoq fjármála­ráðherra í stjórn Alequ Hammond harðneitaði að stjórnin hefði reynt að leyna þessum upplýsingum vegna kosninganna.

Minni skatt­tekjur og lægri tekjur af makríl­veiði er sagðar skýra þennan mikla mun og ennfremur hafði ríkis­stjórnin efnt til mikilla útgjalda til að efla atvinnu í landinu.

Hvað er til ráða?


Danskir fjár­mála­sér­fræð­ingar eru á einu máli um að erf­ið­leik­arnir sem Græn­lend­ingar standi frammi fyrir séu miklir. Ef ekki verði brugð­ist við ástand­inu með mark­vissum aðgerðum blasi algjört hrun við íbúum Græn­lands. Fisk­veiðar eru mik­il­væg­asta tekju­lind lands­ins en ekki er hægt að gera ráð fyrir auknum tekjum af veiðum og vinnslu á næstu árum, að minnsta kosti ekki sem neinu nemi. Þótt græn­lenska ríkið geti ef til vill fengið miklar tekjur af náma-og olíu­vinnslu þegar fram líða stundir, er þó langt í að þær tekjur fari að streyma í rík­is­kass­ann.

Danskir fjöl­miðlar hafa fjallað ítarlega um ástandið á Grænlandi og sérfræðingar sem þeir hafa rætt við segja ástæðu­laust fyrir Grænlendinga að leggja árar í bát þótt á móti blási. Grænlendingar fái árlega allmikla peninga frá Danmörku og ESB, ekki sé hægt að búast við hærri fjár­framlögum af því tagi á næstu árum.

Sérfræðingarnir benda á að margir erlendir aðilar séu vafalítið tilbúnir að leggja fé í atvinnu­uppbyggingu og benda á að mikil þörf sé á nýju íbúðar­húsnæði, líka vanti hafnir, brýr og vegi. Brýnt sé að stækka flug­völlinn í Ilulissat, það sé ein af forsendum þess að efla ferðamanna­strauminn sem sé mikilvæg tekjulind og þar leynist miklir mögu­leikar, sem hafi ekki verið nýttir sem skyldi.

Margir tilbúnir að aðstoða og þá rís sólin á ný


Í Danmörku eru margir öfl­ugir sjóðir og tals­menn nokk­urra þeirra hafa strax tekið vel í hug­myndir um að leggja fé í atvinnu­upp­bygg­ingu á Græn­landi. Stór alþjóð­leg fyr­ir­tæki hafa á síð­ustu árum sömu­leiðis sýnt Græn­landi mik­inn áhuga, þann áhuga þarf að nýta með skyn­sam­legum hætti segja dönsku sér­fræð­ing­arnir. Allt sé þetta á byrj­un­ar­reit en rýnt sé að Græn­lend­ingar leggi „inn­an­sveit­ar­þras“ til hliðar og ein­beiti sér í sam­ein­ingu að þeim brýnu verk­efnum sem við blasi. „Þá mun sólin aftur rísa yfir Græn­landi“ sagði einn dönsku sér­fræð­ing­anna.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár