Segir ASÍ hafa beinlínis unnið gegn nýjum öflum innan verkalýðshreyfingarinnar

Formaður Eflingar segir fram­kvæmda­stjóra SA ekki missa svefn yfir útbreiddum svikum atvinnu­rek­enda á þeim kjara­samn­ingum sem hann gerir fyrir þeirra hönd. Í greina­flokki, sem byrjaði að birtast í morgun, ætlar hún að rekja sögu ágrein­ings innan ASÍ.

Hér má sjá Drífu Snædal, fyrrverandi forseta ASÍ, og Sólveigu Önnu Jónsdóttur, formann Eflingar þegar betur áraði i samskiptum þeirra á milli.
Hér má sjá Drífu Snædal, fyrr­ver­andi for­seta ASÍ, og Sólveigu Önnu Jóns­dóttur, for­mann Eflingar þegar betur áraði i sam­skiptum þeirra á milli. Mynd: Aðsend

Sólveig Anna Jóns­dóttir, formaður Eflingar, segir að Alþýðu­samband Íslands (ASÍ) hafi beinlínis unnið gegn nýjum öflum innan verkalýðs­hreyfingarinnar, sem hún tilheyrir, á undan­förnum árum og grafið undan leiðtogum þeirra afla. Þetta er meðal þess sem fram kemur í fyrstu grein af fjórum í greina­flokki sem hún hefur skrifað um ágreininginn innan ASÍ og mun birtast á Kjarnanum. ASÍ undir stjórn Drífu Snædal hafi ekki verið sérstak­lega hliðhollt verka- og láglaunafólki, að hennar mati.

Í greininni rekur Sólveig Anna innkomu þeirra sem hún kallar „aðkomu­fólk“ í forystu verkalýðs­hreyfingarinnar fyrir nokkrum árum. Þar á hún fyrst og fremst við sjálfa sig, Ragnar Þór Ingólfsson, formann VR, og Vilhjálm Birgisson, formann Verkalýðs­félags Akraness og nú Starfs­greina­sambandsins. „Ég og Ragnar mynd­uðu í upp­hafi fer­ils okkar góð tengsl við Vil­hjálm, en við þrjú áttum fleira sam­eig­in­legt en að vera aðkomu­fólk í verka­lýðs­hreyf­ing­unni. Við urðum til dæmis öll fyrir miklum áhrifum af íslenska efna­hags­hrun­inu 2008 og beittum okkur í átök­unum í kjöl­far þess. Einnig áttum við það öll sam­eig­in­legt að hafa aldrei verið hand­gengin neinum af gömlu vinstri­flokk­unum tveimur sem í gegnum ára­tug­ina hafa haft mest ítök í verka­lýðs­hreyf­ing­unni.“

Þær málefna­legu áherslu­breytingar sem hafi fylgt þeim þremur séu, í tilfelli Ragnars Þórs og Vilhjálms, önnur afstaða til fjár­mála­kerf­is­ins, verð­trygg­ing­ar, hús­næð­is­mála og líf­eyr­is­kerf­is­ins. Í hennar tilfelli hafi það verið áhersla á endur­vakningu félags­legrar bar­áttu með þátt­töku verka­fólks sjálfs, að opna verka­lýðs­hreyf­ing­una fyrir inn­flytj­end­um, höfnun á stétta­sam­vinnu og krafan um aukin jöfnuð í sam­fé­lag­inu.

Missir ekki svefn yfir svikum á kjarasamningum

Í greininni segir að eftir undir­ritun Lífs­kjara­samn­ing­ana í apríl 2019 hafi ASÍ tekið að sér það hlut­verk að eiga þrí­hliða við­ræður við SA og Félags­mála­ráðu­neytið um fram­fylgd á lof­orði rík­is­stjórn­ar­innar um við­ur­lög við kjara­samn­ings­brot­um, nánar til­tekið launa­þjófn­aði. „Sú vinna gekk frá byrjun hægt og illa, og var þar fyrst og fremst um að kenna ósvífni Sam­taka atvinnu­lífs­ins (SA), en Hall­dór Benja­mín Þor­bergs­son fram­kvæmda­stjóri SA er ekki þekktur fyrir að missa svefn yfir útbreiddum svikum atvinnu­rek­enda á þeim kjara­samn­ingum sem hann gerir fyrir þeirra hönd. Það breytir því ekki að með­höndlun ASÍ á mál­inu var óásætt­an­leg.“

Kynntar voru tillögur út úr samtalinu sem Efling taldi fela í sér „ótrú­lega eft­ir­láts­samar kröfur og veikt eft­ir­lit.“

Þegar drög að laga­breytingum litu svo ljós í febrúar í fyrra hafi verið ljóst að „sann­kallaður óskapnaður“ hafði fæðst. „Frum­varps­drögin voru ger­enda­væn í nær öllum atriðum og settu aukna ábyrgð á herðar þolenda. Eins og Efl­ing hefur iðu­lega gert þegar um er að ræða mik­il­væg hags­muna­mál félags­fólks var það upp­lýst um stöðu málsins. Var því grein­ar­gerð Efl­ingar send á fjöl­miðla og birt á vef félags­ins. Olli þetta mik­illi gremju innan ASÍ, Drífa Snæ­dal ásak­aði mig um trún­að­ar­brest og var Halla Gunn­ars­dóttir nýráð­inn fram­kvæmda­stjóri ASÍ send út af örk­inni til að krefj­ast þess af Við­ari Þor­steins­syni að hann tæki grein­ar­gerð félags­ins um frum­varps­drögin niður af vef félags­ins. Efl­ing hlýddi að sjálf­sögðu ekki þess­ari íhlutun ASÍ í starf félags­ins.“

Ekki atlaga að persónu Drífu

Þrátt fyrir þessa stöðu hafi vinna ASÍ og SA, á vettvangi félagsmála­ráðuneytisins, við að uppfæra starfs­kjaralög sem leitt hafi af sér aðra afurð, sem kynnt var fyrir miðstjórn ASÍ í apríl í fyrra. Að mati Sólveigar Önnu fólst engin réttarbót fyrir þolendur launa­þjófnaðar í þessum tillögum heldur. „Var athuga­semdum Efl­ingar ítrekað svarað af hálfu Alþýðu­sam­bands­ins með torskilj­an­legum útúr­snún­ingum og vífilengj­um, sem á end­anum bentu til þess að hvorki for­seti ASÍ né helstu ráð­gjafar hennar virt­ust skilja inn­tak frum­varps­ins sem þau höfðu þó sjálf samið um. Bæði Efl­ing og VR settu hvort í sínu lagi fram afger­andi höfnun á frum­varps­drög­unum og var Drífa beðin þess lengstra orða að í það minnsta láta ráð­herra taka út þá grein í frum­varp­inu sem fól í sér hið óheilla­væn­lega og rang­nefnda févít­is-á­kvæði, til þess að aftra þeirri fárán­legu stöðu að rétt­indi fórn­ar­lamba launa­þjófn­aðar yrðu fyrir atbeina Alþýðu­sam­bands Íslands verri en þau þegar eru.“

Á endanum var frum­varpið ekki lagt fram en Sólveig Anna telur að afstaða Drífu og ASÍ til málsins hafi þó ekkert breyst. „Þess í stað hefur Drífa Snæ­dal kosið að útmála alla mál­efna­lega and­stöðu við ákvarð­anir sam­bands­ins undir hennar for­ystu, sama hversu vel rök­studd sú and­staða hefur ver­ið, sem ein­hvers konar atlögu að per­sónu sinni. Ásak­anir Drífu um slíkar atlög­ur, sagðar koma frá mér, náðu nýjum hæðum í yfir­lýs­ingu hennar vegna afsagnar sinnar í síð­ustu viku. Ekk­ert hefur komið fram, hvorki gögn né vitn­is­burð­ir, sem styðja það.“

Drífa Snædal sagði af sér sem forseti ASÍ í síðustu viku. Í yfir­lýsingu sem hún birti sagði hún að átök innan sambandsins hafi verið óbærileg og dregið úr vinnu­gleði og baráttu­anda. „Þegar við bætast ákvarðanir og áherslur einstakra stéttar­félaga sem fara þvert gegn minni sannfæringu er ljóst að mér er ekki til setunnar boðið.“

Sólveig Anna brást við og sagði uppsögn Drífu tímabæra. Hún hafi sjálf kosið að loka sig inni í blokk með „nán­asta sam­starfs­fólki for­vera síns, Gylfa Arn­björn­sonn­ar, og þeirri stétt sér­fræð­inga og efri milli­stétt­ar­fólks sem ræður ríkjum í stofn­unum rík­is­valds­ins á Íslandi og einnig á skrif­stofum Alþýðu­sam­bands­ins. Upp­runi, bak­land og stuðn­ings­hópar Drífu voru í stofn­ana-póli­tík og í íhalds­armi verka­lýðs­hreyf­ing­ar­inn­ar.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár