Það helsta hingað til: Órói á vinnumarkaði

Kjarninn tekur saman helstu frétta­mál íslensks sam­fé­lags á fyrsta fjórð­ungi 2018: Þar á meðal eru launa­hækk­anir efstu stétta sam­fé­lags­ins, hið umdeilda kjara­ráð og hinn mikli órói á vinnu­mark­aði sem sprottið hefur fram síð­ustu miss­eri.

Hvað?

Mikil spenna hefur mynd­ast í bak­landi stétt­ar­fé­lag­anna í land­inu á und­an­förnum miss­erum.

Verka­lýðs­for­ystan kaus að segja ekki upp kjara­samn­ingum sínum við Samtök atvinnu­lífs­ins þann 28. febr­úar, en samn­ing­arnir munu því gilda til ára­móta. Kosning þessa efnis á for­manna­fundi ASÍ var tví­sýn og greiddu meðal ann­ars full­trúar tveggja stærstu aðild­ar­fé­lag­anna, VR og Eflingar, atkvæði með því að slíta samn­ingum ASÍ við SA. Þar með var ljóst að full­trúar meiri­hluta félags­manna ASÍ væru á þeirri skoð­un. Hins vegar þurfti einnig meiri­hluta atkvæða for­manna þeirra aðild­ar­fé­laga sem atkvæða­rétt áttu á fund­in­um. Meiri­hluti þeirra kaus að halda sam­ing­unum til streitu.

Í jan­úar hafði Sólveig Anna Jóns­dóttir til­kynnt um fram­boð sitt til for­manns emb­ættis í Eflingu stétt­ar­fé­lagi, en innan vébanda félags­ins eru 28 þús­und félags­menn. Ragnar Þór Ing­ólfs­son, for­maður VR, studdi Sólveigu Önnu til for­ystu, en hann sigr­aði með yfir­burð­uðum í for­manns­kosn­ing­u í mars í fyrra og hlaut tæp­lega 63 pró­sent atkvæða. Sólveig Anna hafði betur í for­ystu­kjöri Eflingar í byrjun mars með rúm­lega 80 pró­sent atkvæða. Hún hefur talað fyrir því að verka­lýðs­hreyf­ingin taki rót­tækum breyt­ing­um, og að fólkið á gólf­inu, sem lægstu launin hafi, fái meira vægi í bar­áttu henn­ar, auk þess sem breytt verði um stefnu þegar komið að líf­eyr­is- og hús­næð­is­mál­um.

Ragnar hefur ítrekað lýst van­trausti á verka­lýðs­for­yst­una í heild sinni og sér­stak­lega Gylfa Arn­björns­son for­seta ASÍ. Ragnar hefur ekki tekið sæti í mið­stjórn ASÍ og hyggst ekki gera meðan Gylfi er það við stjórn. Með kjöri Sól­veigar Önnu hitnar enn frekar undir Gylfa sem þarf að sækja sér end­ur­nýjað umboð hjá Alþýðu­sam­band­inu í haust, hygg­ist hann halda áfram störfum.

Af hverju?

For­sendur kjara­samn­inga eru brostnar að mati verka­lýðs­for­yst­unnar. Um það virð­ist hún ein­huga, þó mis­mun­andi skoð­anir séu uppi um hvernig rétt­ast hafi verið að bregð­ast við því. Í yfir­lýs­ingu frá mið­stjórn ASÍ frá því 21. febr­úar kom fram að for­sendur um að launa­stefna kjara­samn­ing­anna hafi verið stefnu­mark­andi hafi ekki gengið eftir. Nokkrum dögum fyrr hafði ASÍ sent frá sér yfir­lýs­ingu vegna mál­efna kjara­ráðs. Starfs­hópur á vegum for­sæt­is­ráð­herra hafði kom­ist að þeirri nið­ur­stöðu að kjara­ráð hafi í ákvörð­unum sínum um laun æðstu stjórn­enda rík­is­ins, farið langt umfam við­mið ramma­sam­komu­lags aðila vinnu­mark­að­ar­ins og stjórn­valda frá 2015, ákvarð­anir þess verið óskýrar, ógagn­sæjar og ekki sam­ræmst fyr­ir­mælum í lögum um störf ráðs­ins. Starfs­hóp­ur­inn varð sam­mála um að leggja kjara­ráð niður og leið­rétta útaf­keyrslu þess, en ASÍ vildi að það yrði gert strax.

Mikil óánægja hefur verið með störf kjara­ráðs og ákvarð­anir þess. Allt frá því kjara­ráð birti úrskurð um laun ráða­manna þjóð­ar­inn­ar, á kjör­dag 29. októ­ber í fyrra, hefur verið mik­ill titr­ingur á vinnu­mark­aði. Strax í kjöl­far þess að úrskurð­ur­inn lá fyrir afsal­aði Guðni Th. Jóhann­es­son for­seti Íslands sér hækk­un­inni, en þing­menn eða ráð­herrar gerðu það ekki. Hafa laun ráð­herra hækkað um 64 pró­sent, ráðu­neyt­is­stjóra um 49 pró­sent og laun þing­manna um 48 pró­sent svo dæmi séu tekin.

Lögum um kjara­ráð var breytt undir lok árs 2016 og tóku þær breyt­ingar gildi um mitt síð­asta ár. Til­gangur frum­varps­ins var að fækka veru­lega þeim sem kjara­ráð ákveður laun og önnur starfs­kjör og færa ákvarð­anir um slíkt ann­að. Á meðal þeirra sem flutt­ust þá undan kjara­ráði voru fjöl­margir for­stjórar fyr­ir­tækja í opin­berri eigu.

Í lok febr­úar bár­ust af því fréttir að for­stjóri Lands­virkj­unar hafi til dæmis fengið 39 pró­senta launa­hækkun á síð­asta ári. Kjarninn greindi frá því í kjöl­farið að aðrir rík­is­for­stjórar hefðu einnig hækkað umtals­vert í launum á síð­asta ári, þar á meðal Ingi­mundur Sig­ur­páls­son sem fékk 17,6 pró­senta launa­hækkun á síð­asta ári. Laun Birnu Ein­ars­dóttur banka­stjóra Íslands­banka hafa hækkað um 140 pró­sent frá því kjara­ráð úrskurð­aði um laun hennar áður en lögin tóku gildi. Þann 26. mars var árs­reikn­ingur RÚV birtur þar sem fram kom að mán­að­ar­leg heild­ar­laun og þókn­anir Magnúsar Geirs Þórð­ar­sonar hafi hækkað umtals­vert á milli ára og voru heild­ar­laun hans í fyrra 22,9 millj­ónir króna.

Hver varð niðurstaðan?

Ljóst að þær tug­pró­senta launa­hækk­anir sem æðstu ráða­menn hafa fengið með úrskurðum kjara­ráðs, þing­menn, ráð­herrar og aðrir hátt­settir emb­ætt­is­menn, verða ekki teknar til baka með lögum. Starfs­hópur um kjara­ráð taldi það ekki færa leið að setja lög um aft­ur­virka end­ur­skoðun ákvarð­ana ráðs­ins sem hefðu í för með sér end­ur­greiðslu­kröfu.

Hækkanir kjara­ráðs, auk tug­pró­senta hækk­ana sem rík­is­for­stjórar og stjórnir rík­is­fyr­ir­tækja hafa tekið til sín, verða stefnu­mark­andi inn í kom­andi kjara­við­ræður. Þrátt fyrir að kjara­samn­ing­arnir haldi fram til ára­móta er ljóst að það er harður kjara­vetur í upp­sigl­ingu. Verka­lýðs­leið­tog­arnir virð­ast allir sam­mála um að líkur séu á að verk­falls­vopn­inu verði beitt óhikað verði ekki komið til móts við kröfur þeirra um launa­hækk­anir til sam­ræmis við aðra hópa í sam­fé­lag­inu.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Kjaramál

Mest lesið

6
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár