Skemmtiferðaskip afbóka komur til Íslands: „Mikið högg fyrir samfélagið“

Fyrsta skemmtiferðar­skipið sem átti að koma til Ísafjarðar í maí kemur ekki til bæjarins út af COVID-faraldrinum. 120 skemmtiferðar­skip áttu að koma til bæjarins í sumar. Hafnar­stjórinn á Ísafirði býst við fleiri afbókunum en vonar það besta og krossar fingur sína.

Högg fyrir Ísafjarðarbæ
Högg fyrir Ísa­fjarð­arbæ Fyrsta skemmti­ferð­ar­skipið sem átti að koma til Ísa­fjarð­ar­bæjar í vor hefur ofboðað komu sína. Bærinn verður af miklum tekjum ef skemmti­ferð­ar­skipin koma ekki í sumar vegna veirunnar.

Fyrsta skemmtiferðar­skipið sem átti að koma til Ísafjarðar þann 10. maí hefur afbókað komu sína til bæjarins vegna COVID-faraldursins. Þetta segir Guðmundur Magnús Kristjánsson hafnar­stjóri Ísafjarðar­hafnar.  „Það er búið að afbóka eitt skip. Svo höfum við bara verið að fylgjast með frétta­tilkynningum skipa­félaganna. Þau eru að leggja skipunum svona 4 til 8 vikum fram í tímann,“ segir Guðmundur. Umrætt skip, Balmoral, sem átti að koma til bæjarins  getur borið allt að 1930 farþega. 

Ferða­þjónusta hefur á liðnum árum orðið mikil­vægasta atvinnu­grein íslensku þjóðarinnar og kemur tæplega þriðjungur af vergri þjóðar­framleiðslu Íslands úr greininni með beinum eða óbeinum hætti. Mikil aukning hefur verið í komu ferða­manna til landsins í kjölfar efnahags­hrunsins á Íslandi árið 2008. Aukinn fjöldi skemmtiferðar­skipa hefur komið til landsins ár frá ári og var metár í fyrra en þá komu meðal annars rúmlega 200 skip bæði til Reykja­víkur og Akureyrar. Áætlaður þjóð­hagslegur ávinningur af komu skemmtiferðar­skipa er um 16.4 milljarðar króna. 

Allt útlit er fyrir að færri eða jafnvel engin skemmtiferðar­skip komi til landsins í sumar þar sem ljóst er að afleiðingarnar af útbreiðslu kóróna­veirunnar munu teygja sig yfir næstu mánuði. Fólki er ráðið frá því að ferðast á milli landa að óþörfu til að hindra útbreiðslu COVID-vírussins  og ferðamenn sem koma til landsins munu þurfa að fara í sóttkví í tvær vikur við komuna.  Í þessari stöðu mun hinn rúmlega 16 milljarða ávinningur þjóðar­búsins af komu skemmtiferðar­skipanna væntanlega þurrkast út.

Næsta skip á eftir Balmoral á að koma til Ísafjarðar þann 13. maí. Þegar Guðmundur er spurður að því hvort ekki megi búast við fleiri afbókunum á næstunni segir hann að fastlega megi gera ráð fyrir því. 

Óvíst með 100.00 gestiÓvíst er hvort um 100.000 gestir komi til Ísafjarðar með skemmtiferðar­skipum. Guðmundur Magnús Kristjánsson, hafnar­stjóri á Ísafirði, segir að fyrsta afbókunin hafi borist út af Covid-veirunni.

Beinar og óbeinar tekjur upp á 1200 milljónir

Um 120 skemmtiferðar­skip eiga að koma til Ísafjarðar í sumar segir Guðmundur og hefur Ísafjarðarbær beinar tekjur upp á um 140 milljónir króna af þessum skipum.  „Við erum að gera ráð fyrir að hafa um 140 milljónir króna í tekjur af skemmtiferðar­skipum í ár. Það var gerð könnun hérna í bænum fyrir tveimur árum um fjárhagsleg áhrif af komu skemmtiferðar­skipa til bæjarins og niður­staðan var að þetta væru 1.2 milljarðar á sumri,“ segir Guðmundur en áætlanir bæjarins gerðu ráð fyrir um 100 þúsund gestum til bæjarins með skemmtiferðar­skipunum í ár.

„Þetta kemur til með að breyta miklu fyrir okkur“ 

„Þetta kemur til með að breyta miklu fyrir okkur,“ segir Guðmundur um þá staðreynd að byrjað sé að afbóka skemmtiferða­skipakomur til bæjarins. „En það eru tveir mánuðir í að vertíðina hefjist og við vitum ekki um endanlegt tjón fyrr en þetta er yfir­staðið.“

Beinu tekjur bæjarins út af hafnar­gjöldum og öðrum aðstöðu­gjöldum eru því rúmlega 140 milljónir og svo bætist við þetta um 1 milljarður króna í óbeinar tekjur, það er að segja tekjur veitinga­staða, verslana, ferða­þjónustu­fyrirtækja og annarra rekstrar­aðila á Ísafirð segir Guðmundur.

Högg fyrir samfélagið

Guðmundur segir að ef öll skipin 120 afbóki komi sína þá sé það högg fyrir Ísafjörð. „Þetta eru verulegir fjármunir í svona litlu samfélagi eins og Ísafirði. Þetta verður mikið högg fyrir samfélagið ef þessar tekjur vantar í sumar. En hvað getum við gert? Við getum ekki breytt fram­vindunni frekar en nokkur annar. Hafnar­reksturinn hefur gengið mjög vel hjá okkur síðastliðin ár og þannig lagað séð og við höfum skilað góðum rekstrar­afgangi.“

 „Við krossum bara fingur og vonandi fer allt vel“ 

Guðmundur horfir þó bjartsýnn fram á veginn og vonar það best: „Við erum þannig lagað séð ágætlega undir það búin að taka skellinn ef hann kemur. En vonandi verður hann ekki og við verðum ágætlega sátt þó við fengjum ekki nema helminginn af þeim skipum sem eru bókuð,“ segir hafnar­stjórinn.  „Við krossum bara fingur og vonandi fer allt vel.“ 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hópsýking greindist eftir þorrablót í Brúarási – Guðrún Hafsteins­dóttir meðal gesta

Enn ein matar­sýking er komin upp eftir þorrablót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jökulsár­hlíð á Fljótsdals­héraði á laugar­daginn. Guðrún Hafsteins­dóttir, formanns­efni Sjálfstæðis­flokksins sótti blótið. Samkvæmt Austur­frétt eru Heilbrigðis­eftirlit Austurlans (HAUST) og Heilbrigðis­stofnun Austur­lands (HSA) að vinna að því að rekja uppruna matar­sýkingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laugardags­kvöld....

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár