Skorar á fólk að kjósa Sjálfstæðisflokkinn og Eyþór: „Ég trúi því að hann sé valinn af Guði“

Eyþór Arnalds, borgar­stjóra­efni Sjálfstæðis­flokksins, fékk eindreginn stuðning á kristilegu sjónvarps­stöðinni Omega. Hann sagði „teppið myndi rakna upp“ ef trúfélag­anna nyti ekki við og bað sjónvarps­maður áhorf­endur að kjósa Sjálfstæðis­flokkinn „í Jesú nafni“. Eyþór segir Guðs vilja hafa ráðið framboði hans.

Eyþór í viðtali
Eyþór í við­tali Eyþór Arnalds kom í við­tal á kristi­legu sjón­varps­stöð­inni Omega og hlaut þar stuðn­ing í nafni Jesú og Guðs. Mynd: Omega

„Ég trúi því að hann sé valinn af Guði,“ sagði Guðmundur Örn Ragnarsson, sjónvarps­maður Omega, í viðtali sínu við Eyþór Arnalds, borgar­stjóra­efni Sjálfstæðis­flokksins í Reykjavík fyrir borgar­stjórnar­kosningarnar í maí.

Eyþór Arnalds kom í viðtal á kristilegu sjónvarps­stöðinni Ómega í gær og var viðtalið tekið af Guðmundi Erni Ragnars­syni, sem meðal annars hefur vakið athygli með fríblaði sem hann ritstýrði, þar sem hann lýsti ánægju með rússnesk lög sem „fara gegn femínisma, gegn kynvillu, gegn fóstur­eyðingum“. Í viðtalinu varaði Guðmundur Örn, sem er fyrr­verandi þjóð­kirkju­prestur, við áhrifum djöfulsins.

Guðmundur Örn hvatti í viðtalinu fólk til að gefa sér Jesús á vald, og bað fólk, í Jesú nafni, að kjósa Sjálfstæðis­flokkinn.

Hann beindi orðum sínum til áhorfenda undir lok viðtalsins. 

„Og bara í Jesú nafni skora
ég á þig að kjósa Eyþór“

„Guð leiði þig og enn vil ég hvetja þig til að kjósa Sjálfstæðis­flokkinn, það er að segja kjósa Eyþór. Mér finnst þetta snúast um hann. Hann er leiðtogi þessa hóps. Og bara í Jesú nafni skora ég á þig að kjósa Eyþór. Ég trúi því að hann sé valinn af Guði.“ 

Eyþór segist hafa leitað til Guðs

Í viðtalinu sagði Eyþór að trúfélög veittu dýpri þjónustu en sálfræðingar. „Það er ákveðin sálgæsla hjá trúfélögum. Við sjáum það að fólk fær oft aðra þjónustu hjá trúfélögum heldur en hjá sálfræðingum. Oft dýpri. Þannig að þetta er önnur upplifun. Sálfræðingar geta leyst einhver mál. En ef við tækjum burt trúfélögin úr teppinu, eins og ég segi, þá held ég að það myndi rakna upp.“

„Minn vilji fékk ekki að ráða.“

Þá talar Eyþór um að hann hafi leitað til Guðs og að Guðs vilji hafi ráðið för í framboði hans. „Ég vonaði að einhver annar myndi gefa kost á sér, sem ég myndi treysta fyrir því. Ég vissi að þetta væri mikið verk.  Þannig að ég bað Guð að gefa mér styrk að segja nei, því margir voru að biðja mig um að fara í þetta. En á endanum, þá fór það öðruvísi, og sagt er nú að vegir Guðs séu órannsakanlegir, og hann, í rauninni kannski, vildi að þetta færi á hinn veginn. Minn vilji fékk ekki að ráða. Og nú er ég hér.“

Guðmundur Örn var áður prestur í Þjóð­kirkjunni, en þótti of bókstafs­trúaður. Eftir að hann sagði íbúum á Seltjarnarnesi til syndanna í upphafi tíunda áratugarins, vegna þess að djöfullinn léki þar lausum hala, og að guðleysingjar ættu vísa vist í helvíti, var hann á eigin vegum. Hann er nú forstöðu­maður trúfélagsins Samfélag trúaðra, sem 28 manns eru skráðir í. 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Kosningar 2018

FréttirKosningar 2018

Vildi ekki verða „húsþræll“ í vinstri- og miðju­samstarfi en myndaði atkvæða­blokk með Sjálfstæðis­flokknum

Sanna Magdalena Mörtu­dóttir, borgar­fulltrúi Sósíalista­flokksins, sætir harðri gagnrýni fyrir að hafa stillt sér upp með Sjálfstæðis­flokknum og Miðflokknum af praktískum ástæðum. „Framkvæmdar­stjóri borgar­stjórnar­flokks Sjálfstæðis­flokksins sendi fyrir hönd allrar stjórnar­andstöðunnar skipan okkar í nefndir,“ sagði Hildur Björns­dóttir, borgar­fulltrúi Sjálfstæðis­flokksins, í dag.
ÚttektKosningar 2018

Laun íslenskra bæjar­stjóra hærri en í erlendum stór­borgum

Árslaun bæjar­stjóra Garða­bæjar og Kópavogs eru hærri en borgar­stjóra New York og London. Báðir bæjar­stjórar eru á hærri launum en forsætis­ráðherra. Laun bæjar­stjóra Kópavogs hækkuðu um tæp 58% á kjör­tímabilinu og laun bæjar­stjóra Reykja­nesbæjar um 36%. „Allt óréttlæti mun kalla á meiri óánægju,“ segir formaður stéttar­félagsins BSRB.

9 mín. lestur

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár