Evrópusambandið og Víetnam hafa skrifað undir fríverslunarsamning sem er enn fremur fyrsti sinnar tegundar á milli ESB og þróunarríkis í Asíu. Þetta kemur fram í umfjöllun Reuters.
Enn á eftir að samþykkja samninginn innan Evrópuþingsins sem gæti reynst erfitt vegna áhyggja sumra þingmanna af mannréttindabrotum víetnamskra stjórnvalda. Samningaviðræðurnar tóku þrjú og hálft ár og munu fella niður 99 prósent tolls fjölmargra vara, en tollur sumra vara verður felldur niður í skrefum. Í fyrra var útflutningur Víetnam til ESB 42,5 milljarðar Bandaríkjadala.
Evrópusambandið er næststærsti útflutningsaðili Víetnam á eftir Bandaríkjunum. Búist er við að samningurinn muni auka landsframleiðslu um 2,18 til 3,25 prósent á ári, að því er kemur fram í frétt Reuters.

Víetnam er sextánda stærsta viðskiptaríki ESB í heildina litið og næst stærsta viðskiptaríki innan bandalags Suðaustur-Asíuríkja (ASEAN), að því er kemur fram á vefsvæði framkvæmdastjórnar Evrópusambandsins.
Helstu útflutningsvörur ESB til Víetnam eru hátæknivörur, flugvélar, bifreiðar og lyf. Helstu útflutningsvörur Víetnam til ESB eru símtæki, raftæki, skófatnaður, vefnaður, föt, kaffi, hrísgrjón og húsgögn.
Veistu meira? Láttu okkur vita
Það tókst ekki að sækja formið. Reyndu aftur eftir augnablik.




















































Athugasemdir