Hvað skal gera með íslenskan tíma?

Samkvæmt greinar­gerð sem unnin var á vegum forsætis­ráðuneytisins eru þrír valkostir í stöðunni varðandi klukkuna á Íslandi en rann­sóknir sýna að nætur­svefn Íslendinga er almennt séð of stuttur en slíkt getur verið heilsu­spillandi.

Greinar­gerðin „Staðar­tími á Íslandi – stöðumat og tillögur“ hefur verið birt í samráðs­gátt stjórn­valda en umsagnar­frestur er til 10. mars næst­komandi. Greinar­gerðin var unnin í forsætis­ráðuneytinu og í henni er skoðað hvort færa eigi staðar­tíma nær sólartíma miðað við hnattræna legu landsins.

Í frétt forsætis­ráðuneytisins um málið kemur fram að rann­sóknir sýni að nætur­svefn Íslendinga sé almennt séð of stuttur en slíkt geti verið heilsu­spillandi og haft áhrif á náms­árangur og fram­leiðni í atvinnu­lífinu. Sérstak­lega sé þetta áhyggju­efni vegna barna og ungmenna. Ein líkleg skýring sé að klukkan sé ekki í samræmi við hnattræna legu landsins.

Þrír valkostir eru settir fram í greinar­gerðinni. Í fyrsta lagi er lagt til að staðan verði óbreytt og klukkan áfram einni klukku­stund fljótari en ef miðað væri við hnattstöðu. Með fræðslu sé fólk aftur á móti hvatt til að ganga fyrr til náða.

Í öðru lagi að klukkunni verði seinkað um eina klukku­stund frá því sem nú er, í samræmi við hnattstöðu landsins. Sem dæmi er tekið að ef klukkan er 11:00 nú þá verði hún 10:00 eftir breytingu.

Í þriðja lagi er lagt til að klukkan verði áfram óbreytt en skólar og jafnvel fyrirtæki og stofnanir hefji starfsemi seinna á morgnana.

Misræmi milli staðartíma og sólartíma

Í greinar­gerðinni kemur fram að frá árinu 1968 hafi staðar­tími á Íslandi miðast við miðtíma Greenwich. Sé þannig misræmi milli staðar­tíma og sólartíma miðað við hnattræna legu landsins sem þýðir að í Reykjavík er sól hæst á lofti um kl. 13:30 en ekki um kl. 12:30 eins og vera ætti ef miðað væri við tímabelti samkvæmt hnattstöðu.

Frá 1939 hafði klukkunni verið flýtt á sumrin og seinkað á veturna og frá 1968 var miðað við svokallaðan sumartíma allan ársins hring. Færsla klukkunnar tvisvar á ári þótti óheppileg og ákveðið var að falla frá henni. Rökin fyrir því að miða fastan tíma árið um kring við sumartíma voru fyrst og fremst viðskipta­legs eðlis, heppilegra þótti að vera nær Evrópu í tíma og talið var jákvætt að dagsbirta myndi nýtast betur á vökutíma lands­manna. Neikvæð áhrif myrkari vetrar­morgna voru talin minni en ávinningur af birtu síðdegis.

Vildu að íslenskur tími væri í takt við tíma annarra landa

Á vef Almanaks Háskóla Íslands er saga umræðna um tíma­reikning rakin. Þar er meðal annars greint frá því að í kjölfar breytinganna 1968 hafi ríkt friður um tíma­reikninginn í aldar­fjórðung. Það var svo 1994 sem fram kom þingmál þar sem lögð var til breyting, raunar í þá átt að flýta klukkunni enn frekar til að íslenskur tími væri meira í takt við tíma helstu markaðs­landa okkar að sumri til og að auka fram­leiðni í atvinnu­lífinu.

Í kjölfar þeirrar tillögu var lagt fram frumvarp 1995 sem var endur­flutt 1998 og 2000 og þings­ályktunar­tillaga sama efnis 2006. 2010 kom fram tillaga sem gekk í þá átt að seinka klukkunni og í kjölfarið tillögur sama efnis 2013, 2014 og 2015. Í umsögnum sem bárust þinginu vegna síðarnefndu tillagnanna var fyrst og fremst bent á lýðheilsurök. Á sviði lækna­vísinda og geðræktar kom fram jákvætt viðhorf til þess að færa klukkuna nær sólar­gangi en á hinn bóginn hafa til dæmis íþrótta­samtök bent á skertan möguleika til útivistar síðdegis.

Tímabundið misræmi hefur áhrif á velferð og vellíðan

Þau þingmál sem hafa komið fram síðustu ár endur­spegla að undan­farið hefur athygli manna beinst í auknum mæli að áhrifum sólar­ljóss og birtu á heilsu og líðan fólks. Fjöldi vísinda­rannsókna á þessu sviði liggur fyrir og Nóbels­verðlaunin í lífeðlis- og læknis­fræði 2017 voru veitt fyrir rann­sóknir á erfða og sameinda­líffræði dægur­klukkunnar. Í greinar­gerðinni er samantekt um Nóbels­verðlaunin lauslega þýdd:

„Með ótrúlegri nákvæmni lagar innri klukkan líkams­starfsemi okkar að ólíkum tímum dags. Innri klukkan stýrir mikil­vægum þáttum eins og hegðun, magni hormóna, svefni, líkams­hita og efna­skiptum. Tíma­bundið misræmi milli ytra umhverfis og innri líkams­klukku hefur áhrif á velferð okkar og vellíðan, til dæmis þegar ferðast er milli tímabelta og fólk upplifir „þotu­þreytu“. Einnig er ýmislegt sem bendir til þess að viðvarandi misræmi milli lífsstíls og taktsins sem líkams­klukkan stýrir tengist aukinni hættu á marg­víslegum sjúkdómum.“

Ekki hægt að horfa fram hjá niðurstöðum rannsókna

Starfs­hópur skipaður af heilbrigðis­ráðherra skilaði greinar­gerð fyrr á árinu um ávinning fyrir lýðheilsu og vellíðan lands­manna af því að leiðrétta klukkuna til samræmis við gang sólar. Samkvæmt greinar­gerðinni hafa niður­stöður vísinda­rannsókna hin síðari ár leitt í ljós neikvæðar heilsufarslegar afleiðingar þess að miða við of fljótan staðar­tíma, líkt og nú er gert hér á landi.

Í greinar­gerðinni segir að ekki verði horft fram hjá niður­stöðum vísinda­rannsókna sem sýna fram á áhrif sólar­ljóss og birtu á heilsu og líðan fólks. Taktur dagsins – klukkan – varði alla landsmenn, atvinnulíf og stjórn­sýslu á marg­víslegan hátt. Því hafi ríkis­stjórnin samþykkt að hefja skoðun á því hvort breyta eigi tíma­reikningi á Íslandi og færa klukkuna nær raun­verulegum sólartíma miðað við hnattstöðu. Liður í þeirri skoðun sé að efna til víðtæks samráðs um málefnið og eru þau sem láta sig málið varða, almenningur jafnt sem fyrirtæki, stofnanir og félaga­samtök, hvött til að kynna sér málið og senda sín sjónarmið og tillögur í samráðs­gátt Stjórnar­ráðsins.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár