Twitter heldur upp á níu ára afmæli með lista yfir tíu mikilvæg tíst

Samfélags­miðillinn Twitter er níu ára í dag. Í tilefni þess hefur miðillinn tekið saman tíu áhrifarík tíst sem hafa birst á miðlinum frá upphafi. Þar eru ýmsir sögulegir atburðir, sem sagt var frá fyrst á Twitter.

Fyrsta tístið sem birtist á miðlinum var frá einum stofnanda hans, Jack Dorsey, en þá hét Twitter Twttr.

just setting up my twttr

— Jack (@jack) March 21, 2006

Chris Messina kom með hugmyndina að því að nota kassa­merkið # til að merkja ákveðna hluti og viðburði.

how do you feel about using # (pound) for groups. As in #barcamp [msg]? — Chris Messina® (@chrismessina) August 23, 2007

Þegar Fönix-geimfarið lenti á Mars og fann þar ís notaði NASA Twitter til að segja frá því.

Are you ready to celebrate? Well, get ready: We have ICE!!!!! Yes, ICE, WATER ICE on Mars! w00t!!! Best day ever!!

— MarsPhoenix (@MarsPhoenix) June 20, 2008

Þegar flugvél nauðlenti í Hudson-ána í New York var Janis Krums í ferju­siglingu á ánni og sagði frá málinu á Twitter.

http://twitpic.com/135xa - There's a plane in the Hudson. I'm on the ferry going to pick up the people. Crazy. — Jānis Krūms (@jkrums) January 15, 2009

Það þótti merkilegt þegar Clarence House, skrif­stofa Karls Breta­prins, tilkynnti um trúlofun Vilhjálms prins og Katrínar Middleton.

The Prince of Wales is delighted to announce the engagement of Prince William to Miss Catherine Middleton - www.princeofwales.gov.uk

— Clarence House (@ClarenceHouse) November 16, 2010

Sohaib Athar sagði óafvitandi fyrstur frá því á Twitter þegar ráðist var á Osama bin Laden í Pakistan.

Helicopter hovering above Abbottabad at 1AM (is a rare event). — Sohaib Athar (@ReallyVirtual) May 1, 2011

Barack Obama tísti þessu áður en hann kom fram opinber­lega til að tilkynna að hann hefði sigrað í forseta­kosningunum í annað sinn.

Four more years. pic.twitter.com/bAJE6Vom

— Barack Obama (@BarackObama) November 7, 2012

Þegar tvær sprengjur sprungu í Boston-maraþoninu var Twitter mikil­vægur miðill. Hlutirnir gerðust hratt og sjónar­vottar sem og fjöl­miðlar og lögregla notuðu Twitter mikið.

BREAKING: A witness reports hearing two loud booms near the Boston Marathon finish line. — The Boston Globe (@BostonGlobe) April 15, 2013

Þessu tísti Ellenar DeGeneres hefur verið endurtíst (e.retweet) oftar en nokkru öðru tísti á miðlinum.

If only Bradley's arm was longer. Best photo ever. #oscars pic.twitter.com/C9U5NOtGap

— Ellen DeGeneres (@TheEllenShow) March 3, 2014

Þetta tíst frá Joachim Roncin varð fljótt mjög vinsælt, í kjölfar árásarinnar á ritstjórnar­skrifstofur Charlie Hebdo. Je suis Charlie varð táknmynd árásarinnar og merki um stuðning við tjáningar­frelsi.

pic.twitter.com/5hr2brBJQt — joachim (@joachimroncin) January 7, 2015
Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár