Helmingur þjóðar hefur litlar áhyggjur af orkupakkanum

Mun fleiri Íslendingar hafa litlar eða engar áhyggjur af áhrifum þriðja orkupakka ESB á hagsmuni þjóðarinnar en þeir sem áhyggjur hafa. Miðflokk­urinn sker sig úr en 90 prósent stuðnings­manna flokksins hafa áhyggjur af áhrifum orku­pakkans.

Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, formaður Miðflokksins.
Sig­mundur Davíð Gunn­laugs­son, for­maður Mið­flokks­ins. Mynd: Bára Huld Beck

Helmingur lands­manna segist hafa litlar eða engar áhyggjur af áhrifum þriðja orkupakka ESB á hagsmuni þjóðarinnar en um þriðjungur hefur miklar áhyggjur. Þetta kemur fram í nýrri könnun MMR sem framkvæmd var dagana 9. til 16. september síðastliðna.

Alls kváðust 22 prósent hafa mjög miklar áhyggjur af áhrifum þriðja orku­pakkans, 12 prósent kváðust hafa frekar miklar áhyggjur, 16 prósent bæði/og, 17 prósent frekar litlar áhyggjur og 33 prósent mjög litlar eða engar áhyggjur.

Í frétt MMR kemur fram að fyrir­tækið hafði áður mælt hversu fylgjandi eða andvígir landsmenn væru gagnvart innleiðingu þriðja orku­pakkans á Íslandi en í könnun sem framkvæmd var í júní á þessu ári reyndust 46 prósent svarenda andvígir innleiðingunni og 34 prósent hlynntir henni.

Nokkur munur reyndist á áhyggjum karla og kvenna en karlar reyndust líklegri en konur til að segjast hafa litlar áhyggjur af áhrifum þriðja orku­pakkans á hagsmuni þjóðarinnar en 41 prósent karla sögðust hafa mjög litlar eða engar áhyggjur, saman­borið við 23 prósent kvenna. Þá kváðust 27 prósent kvenna hafa mjög miklar áhyggjur af áhrifum orku­pakkans en 19 prósent karla.

Svarendur í elsta aldurs­hópnum, 67 ára og eldri, voru líklegri en svarendur annarra aldurs­hópa til að segjast hafa miklar áhyggjur af áhrifum innleiðingar orku­pakkans, eða 41 prósent, en 34 prósent þeirra sögðust hafa mjög miklar áhyggjur. Svarendur yngsta aldurs­hópsins, 18 til 29 ára, reyndust hins vegar líklegastir allra aldurs­hópa til að segjast hafa litlar áhyggjur, eða 55 prósent, en 41 prósent þeirra kváðust hafa mjög litlar eða engar áhyggjur.

Þá reyndust svarendur búsettir á höfuð­borgar­svæðinu líklegri til að segjast hafa litlar áhyggjur af áhrifum pakkans á hagsmuni þjóðarinnar heldur en íbúar lands­byggðarinnar en 37 prósent höfuð­borgarbúa kváðust hafa mjög litlar eða engar áhyggjur. Þá kváðust 28 prósent lands­byggðarbúa hafa mjög miklar áhyggjur, saman­borið við 19 prósent þeirra af höfuð­borgar­svæðinu.

Miðflokkurinn sker sig úr

Kjósendur Miðflokksins hafa lang­mestar áhyggjur af áhrifum þriðja orku­pakkans á hagsmuni þjóðarinnar. Alls hafa 72 prósent kjósenda hans mjög miklar áhyggjur af áhrifunum og alls 90 prósent þeirra hafa mjög miklar eða frekar miklar áhyggjur af honum.. Næst mestar áhyggjur eru hjá kjósendur Fram­sóknar, þar sem 26 prósent segjast hafa mjög miklar áhyggjur af áhrifum orkupakkkans og 11 prósent til viðbótar frekar miklar áhyggjur.

Athygli vekur að kjósendur Sjálfstæðis­flokksins virðast nokkuð rólegir yfir málinu, en mikið var látið með meinta úlfúð innan flokksins þegar orku­pakka­umræðan stóð sem hæst. Þar segjast einungis sjö prósent kjósenda að þeir hafi mjög miklar áhyggjur af áhrifum orku­pakkans á íslenska hagsmuni og 13 prósent frekar miklar áhyggjur. Einungis á meðal Pírata (sex prósent) eru mjög miklu áhyggjurnar minni. Vert er þó að taka fram að fylgi Sjálfstæðis­flokksins hefur mælst sögulega lágt í könnunum MMR upp á síðkastið og verið undir 20 prósent nokkrar kannanir í röð. Því kann að vera að hluti af þeim hópi sem var óánægður með orku­pakkamálið sé nú ákveðinn í að kjósa annan flokk og mælist því á meðal kjósenda hans nú.

Minnstu áhyggjurnar af málinu eru á meðal þeirra tveggja flokka sem hafa Evrópu­sambands­aðild á stefnu­skrá sinni, Samfylkingu og Viðreisn. Innan þeirra raða hafa 82-83 prósent kjósenda flokkanna litlar eða engar áhyggjur af áhrifum orku­pakkans á íslenska hagsmuni.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár