General Motors innkallar 1,4 milljónir bíla - Geta orðið alelda

Bandaríski bíla­fram­leiðandinn General Motors hefur innkallað 1,4 milljónir bíla vegna galla í vélbúnaði. Gallinn er talinn alvarlegur, en hann tengist olíu­búnaði í bílunum. Leki getur komið upp, sem getur gert bílana alelda á skömmum tíma.

Fyrir­tækið hefur áður þurft að innkalla bíla vegna þessa galla, og nær innköllunin nú til bíla sem komu á götuna á árunum 1997 til 2004.

Í tilkynningu frá fyrir­tækinu segir að fyrri innkallanir, á árunum 2007 og 2009, hafi ekki dugað til að laga þá galla sem í bílunum voru, og hefur eldur þegar komið upp í ríflega 1.300 ökutækjum, að því er segir í umfjöllun Wall Street Journal.

Tegundirnar sem hafa nú verið innkallaðar eru nær allar á götunni í Banda­ríkjunum. Um er að ræða Pontiac Grand Prix og Buick Regal, og einnig þrjár tegundir Chevrolet bifreiða.


Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár