„Mjög bagalegt ef týnst hafa persónulegir munir“

Verkefna­stjóri hjá Útlendinga­stofnun segir að starfs­menn stofn­un­ar­innar hafi gengið frá eigum hælis­leitanda „með virðingu fyrir þeim munum sem maðurinn hafði í híbýlum sínum“.

Skúli Á. Sigurðsson, verkefna­stjóri hælis­sviðs hjá Útlendinga­stofnun, segir að haft hafi verið samráð við íranskan hælis­leitanda áður en starfs­fólk Útlendinga­stofnunar tæmdi herbergi hans og flutti eigur hans á annan stað. Þetta hafi verið gert „á vandaðan hátt og með virðingu fyrir þeim munum sem maðurinn hafði í híbýlum sínum“. 

Um er að ræða sama mann og hótaði að kveikja í sér fyrir utan höfuð­stöðvar Rauða krossins í lok ágúst. Eins og Stundin greindi frá í september fóru starfs­menn Útlendinga­stofnunar inn í íbúð mannsins og gengu frá eigum hans, meðal annars fjölskyldu­myndum, meðan hann var vistaður á geðsviði Land­spítalans. Hælis­leitandinn hefur sagt að ekki hafi verið haft samráð við sig og gerði starfs­maður Rauða krossins athugasemd við vinnu­brögð Útlendinga­stofnunar. 

Í tölvu­pósti Skúla Á. Sigurðs­sonar til Stundarinnar kemur fram að bæði hafi verið rætt við skjólstæðing Útlendinga­stofnunar og heilbrigðis­starfsfólk áður en herbergið var tæmt. 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár