„Og nú er bókin komin út. Ég er þreytt. En ég er glöð.“

Í bókinni Skáldkona gengur laus — erindi nítjándu aldar skáld­kvenna við heiminn fjallar Guðrún Ingólfs­dóttir um fjórar skáld­konur sem eru lítt þekktar eða óþekktar og skoðar hvað þær voru að reyna að segja.

„Í bókinni Skáldkona gengur laus – erindi nítjándu aldar skáld­kvenna við heiminn, fjalla ég um fjórar skáld­konur, ýmist lítt þekktar eða allsendis óþekktar. Það er vert að taka það fram að á nítjándu öld fengu mjög fáar skáld­konur eitthvað gefið út eftir sig. Lunginn af kveðskap kvenna er varð­veittur í handritum,“ segir Guðrún Ingólfs­dóttir rithöfundur. „Þótt ég fjalli vissulega um líf þessara kvenna, þá er megin­þunginn á að fjalla um kvæðin þeirra og spyrja spurninga eins og: Hvað er þarna? Hvað eru þær að reyna að segja? Hver er skáldmynd þeirra? Hvernig er heimsmynd þeirra og hugmyndir? Konur áttu mjög lítinn þátt í að móta alls konar stefnur eins og rómantísku stefnuna og ýmsar stefnur sem voru efst á baugi á þessum tíma. Þess vegna fannst mér að í stað þess að bera þær saman við einhverja hefð og strauma sem þær kannski höfðu lítið að segja um, þá væri …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár