Boumeddiene sögð vera flúin til Sýrlands í gegnum Tyrkland

Hayat Boumeddiene, mest að leitaða kona Frakk­lands, er talin hafa flúið til Sýrlands með því að ferðast í gegnum Tyrkland. Þetta staðfestu heimildar­menn innan frönsku lögreglunnar við Le Figaro í gær. Boumeddiene, sem er 26 ára, er grunuð um að vera samverka­maður mannanna þriggja sem stóðu að árásum í París í síðustu viku þar sem 17 manns voru myrtir.

Samkvæmt heimildum Le Monde og The Wall Street Journal, sem sagðar eru komnar innan úr leyni­þjónustu Frakk­lands, á Boumeddiene að hafa farið til Spánar og flogið frá Madríd til Istanbúl. Þaðan á hún að hafa farið yfir til Sýrlands.

Boumeddiene er vopnuð og hættuleg að sögn frönsku lögreglunnar.

Myndirnar sem lögreglan dreifði af Coulibaly og Boumeddiene þegar leit að þeim hófst.

Mannskæðasta árásin frá 1961


Árás­irnar hófust á mið­viku­dag þegar ráð­ist var inn í höf­uð­stöðvar skop­mynda­rits­ins Charlie Hebdo. Þar voru tveir lög­reglu­menn og tíu starfs­menn blaðs­ins myrtir. Árás­ar­menn­irnir voru tveir bræður, Said Kouachi og Cherif Kouachi. Þeir réð­ust sér­stak­lega á blaðið, og ákveðna starfs­menn þess, vegna teikn­inga sem það hafði birt af Múhammeð spá­manni.

Myndirnar sem lögreglan dreifði af Coulibaly og Boumeddiene þegar leit að þeim hófst.
Mynd­irnar sem lög­reglan dreifði af Coulibaly og Boumeddiene þegar leit að þeim hófst.

Mynd af Coulibaly og Boumeddiene saman.

Mynd af Coulibaly og Boumeddiene saman.
Mynd af Coulibaly og Boumeddiene saman.

Á fimmtudag myrti Ame­dy Couli­ba­ly, sem sagðist vera vitorðs­maður bræðranna, lögreglu­konu í París. Talið var að Hayat Boumeddiene hafi verið með honum þegar morðið fór fram en nýjar fréttir segja að hún hafi mögulega þegar verið komin til Tyrklands þegar árásirnar fóru fram.

Bræðurnir voru báðir drepnir í áhlaupi lögreglu síðdegis á föstudag. Þeir höfðu þá tekið gísl og héldust við í lítilli prentsmiðju rétt utan Parísar. Samtímis var ráðist inn í verslun í austur­hluta Parísar, sem rekin er af gyðingum, þar sem önnur gíslataka var í gangi. Þar hafði Amedy Coulibaly tekið minnst sex gísla. Coulibaly hafði hótað að myrða gísla sína ef reynt yrði að handsama Kouachi bræður. Coulibaly var drepinn í áhlaupi lögreglu en hann hafði áður drepið fjóra gísla. Boumeddiene er enn leitað.

Árásin er mann­skæðasta hryðjuverka­árás sem átt hefur sér stað í Frakk­landi frá árinu 1961, en þá stóð Alsírska stríðið yfir.

Sögðu að Al Kaída í Jemen hefði sent þá


Franska sjón­varps­stöðin BFMTV náði tali við Cherif Kouachi í síma á meðan að hann og bróðir hans héldu manni í gísl­ingu í lít­illi prent­smiðju skammt frá París. Frétta­maður stöðv­ar­innar, Igor Sahiri, ræddi við Kouachi á föstu­dags­morgun. Í sam­tal­inu segir Cherif Kouachi að bræð­urnir séu vernd­arar spá­manns­ins Múhammeðs og að AL Kaída í Jemen hefði sent þá.

Frétta­stöðin ræddi líka við Coulibaly skömmu áður en hann var drepinn. Hann sagði meðal annars að hann og Kouachi bræðurnir hefði „samstillt“ aðgerðir sínar.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár